Finnska leiðin skoðuð í menntun og vísindum Óli Kristján Ármannsson skrifar 21. janúar 2009 00:01 Jukka Koivisto lýsir efnahagsþrengingum Finna og hvernig brugðist var við þeim, svo sem með breyttum áherslum í menntamálum og inngöngu í Evrópusambandið. Markaðurinn/GVA
Líkur eru á að við endurskipulag menntamála verði horft sérstaklega til reynslu Finna sem í kjölfar efnahagskreppu við upphaf tíunda áratugarins lögðu sérstaka áherslu á að veita fjármunum í rannsóknir og þróun. Síðustu ár hefur þar að jafnaði verið veitt sem nemur þremur til fjórum prósentum af landsframleiðslu til rannsókna og þróunar. Á allra næstu vikum tekur til starfa ráðgjafarnefnd verkefnisstjórnar um stefnumótun menntamálaráðuneytisins á sviði háskólamála og vísinda. Í nefndinni á sæti Christoffer Taxell, formaður samtaka háskóla í Finnlandi og fyrrum formaður samtaka finnskra atvinnurekenda, en hann var jafnframt menntamálaráðherra Finna í fjármálakreppunni. Formaður verkefnastjórnarinnar er Guðmundur Árnason, en hann er í leyfi frá starfi ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins til að fylgja eftir ákvörðunum og aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna fjármálahrunsins í haust. Auk Taxells eiga sæti í ráðgjafarnefndinni Markku Linna, fyrrum ráðuneytisstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytis Finna, og svo tveir sérfræðingar Efnahags- og samvinnustofnunarinnar (OECD). Það eru Iain Gillespie, forstöðumaður líftæknisviðs OECD á vísinda- og tækniskrifstofu, og svo fulltrúi menntasviðs OECD. Vilhjálmur Lúðvíksson, verkefnastjóri í menntamálaráðuneytinu, sem skipuleggur starf ráðgjafarnefndarinnar, segir fyrstu fundi hafa tafist aðeins, en þeir verði líkast til í næsta mánuði. Hann segist ekki gera ráð fyrir öðru en ráðgjafarnefndin komi fram með afar skýr skilaboð, en svo sé undir stjórnmálamönnum komið hverju verði hrint í framkvæmd. Ráð er fyrir því gert að verkefnastjórnin starfi fram á næsta vor, hið minnsta. Vilhjálmur bendir hins vegar á að á milli 2008 og 2009 aukist heldur framlag til rannsókna í gegnum opinbera kerfið, eða um meira en fimmtung milli ára. „Aðallega eru það samkeppnissjóðirnir sem eru efldir," segir hann og telur þarna endurspeglast ákveðin áhersla í að beita skólakerfinu í þágu uppbyggingar með langtímahagsmuni í huga. Á næsta ári reyni svo líkast til enn frekar á forgangsröðun í ríkisfjármálunum og komi þá til með að skipta máli vinnan sem nú sé unnin við verkefnastjórnina með erlendum ráðgjöfum. „Og auðvitað er með þessu verið að setja menntamál, vísindamál og nýsköpun í samhengi við almenna efnahagsstefnu." Á morgunverðarráðstefnu Samtaka atvinnulífsins, Félags kvenna í atvinnurekstri og Finnsk-íslenska verslunarráðsins í gær lýstu reynslu sinni af efnahagshruni Finna Jukka Koivisto, framkvæmdastjóri stefnumótunar EK, samtaka atvinnulífsins í Finnlandi, og Ander Blom, formaður PL, samtaka finnskra einkafyrirtækja. Þeir voru sammála um að áhersla Finna á að byggja upp frá grunni þekkingu í landinu með áherslu á rannsóknir og þróun hafi skipt höfuðmáli við að byggja þar upp efnahags- og mannlíf á ný.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira