Kauphöllin sektar Bakkavör og Milestone 9. mars 2009 19:36 Kauphöllin.
Kauphöllin hefur ákveðið að áminna Bakkavör Group og Milestone og beita févíti. Bakkavör er gert að greiða 2,5 milljónir króna í sekt vegna ummæla Lýðs Guðmundssonar stjórnarformanns félagsins í sjónvarpsviðtali. Sekt Milestone nemur 1,5 milljón króna. Ummæli Lýðs í Markaðnum 27. október 2008 færði Kauphöllin hlutabréf Bakkavarar á Athugunarlista sökum óvissu varðandi fjárhagslega stöðu félagsins og verðmyndun fjármálagerninga þess. Taldi Kauphöllin að upplýsingar sem komið höfðu fram í ummælum stjórnarformanns félagsins í viðtali í Markaðnum á Stöð 2 teldust verðmótandi. Þar sem upplýsingarnar voru ekki birtar opinberlega var talin hætta á ójafnræði meðal fjárfesta varðandi aðgang að upplýsingunum. Upplýsingarnar vörðuðu ákvæði í lánasamningi Bakkavarar sem stjórnarformaður félagsins sagði veita lánveitendum félagsins heimild til gjaldfellingar ef breytingar yrðu á stjórn Exista hf., stærsta eiganda hlutafjár í Bakkavör, án samþykkis lánveitenda Bakkavarar.Grein um fjárhagsstöðu Milestone Málavextir í máli Milestone eru þeir að þann 15. nóvember í fyrra birtist grein í fjölmiðlum um fjárhagsstöðu Milestone. Var því haldið fram í greininni að Milestone hefði ekki greitt víxil sem var á gjalddaga 26. október 2008. Fram kemur að tilkynning frá Milestone þess efnis var síðar birt opinberlega 19. nóvember. Í kjölfarið fór Kauphöllin fram á formlegar skýringar á því af hverju tilkynning um drátt á greiðslum vegna víxilsins var ekki birt opinberlega um leið og útgefanda varð ljóst að hann gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt skilmálum víxilsins samkvæmt reglum Kauphallarinnar. Fram kemur á vef Kauphallarinnar fyrirtækið hafi þá m.a. vísað til þess að öllum hefði átt að vera ljóst að flest fyrirtæki á Íslandi væru tæknilega ógjaldfær og því hefði ekki verið talin þörf á að birta tilkynningu um drátt á afborgunum af fyrrgreindum verðbréfum.
Mest lesið Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Sjá meira