Tokyo-Mitsubitshi bankinn vill viðskiptaupplýsingar úr Kaupþingi Valur Grettisson skrifar 24. júlí 2009 14:45 Kaupþing.
Mál bandaríska gjaldþrotadómstólsins gegn Nýja Kaupþingi var þingfest í morgun en málið snýst um aðgang að viðskiptaupplýsingum. Það er Bank of Tokyo-Mitsubitshi sem vill fá aðgang að upplýsingum viðskiptavina Kaupþings sem varða reikninga þeirra. Ekki er ljóst hvers eðlis upplýsingarnar eru né hverjir eiga í hlut því bankaleynd hvílir yfir þeim. Hitt er þó ljóst að gögnin urðu til í og rétt fyrir október á síðasta ári. Sem sagt í miðju bankahruninu. Vísir sagði frá málinu fyrr í vikunni en þá kom fram að það er United States Bankruptcy Court sem stefnir Nýja Kaupþingi en bankinn eru vörsluaðili gagnanna dularfullu. Lögmaður Tokyo-Mitsubitshi bankans sagði í Héraðsdómi Reykjavíkur að hann hefði ekki rétt á að tala fyrir gjaldþrotadómstólinn en hann er lögmaður japanska bankans. Verjendur Nýja Kaupþings neituðu kröfu lögmanns Mitsubitshi bankans sem er Heiðar Örn Stefánsson. Þá var einnig deilt um aðild gamla Kaupþings að málinu en gögnin urðu til þegar hann var enn starfandi og ekki farinn í þrot. Lögfræðingar deildu um aðild gamla Kaupþings að málinu en Heiðar Örn vitnaði í lagaheimildir þar sem kom fram að réttast væri að stefna vörsluaðila gagnanna. Kaupþing er nú til gjaldþrotameðferðar í Bandaríkjunum en bankinn átti eignir að andvirði 222 milljóna dollara þar í landi þegar hann fór í þrot. Úrskurður hvort gamli Kaupþing eigi rétt á aðild að málinu verður kveðinn upp í byrjun næstu viku.
Tengdar fréttir Bandarískur gjaldþrotadómstóll í mál við Nýja Kaupþing Bandaríski gjaldþrotadómstóllinn hefur höfðað mál á hendur Nýja Kaupþing í Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Vísis er um að ræða gagnaöflunarmál. 22. júlí 2009 10:24 Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira
Bandarískur gjaldþrotadómstóll í mál við Nýja Kaupþing Bandaríski gjaldþrotadómstóllinn hefur höfðað mál á hendur Nýja Kaupþing í Héraðsdómi Reykjavíkur. Samkvæmt heimildum Vísis er um að ræða gagnaöflunarmál. 22. júlí 2009 10:24