Færeyskt tryggingafélag vill á íslenskan markað 10. mars 2009 10:54 Edvard Heen, framkvæmdastjóri TF.
Tryggingarfelagið Føroyar stefnir að því að hefja starfsemi á Íslandi fyrir árslok 2009. Þetta tilkynnti Edvard Heen, framkvæmdastjóri félagsins, á fréttamannafundi í morgun í Reykjavík. Á fundinum kom fram að ráðamenn í færeyska félaginu hefðu frá því snemma árs 2007 kannað möguleika á að koma inn á íslenska markaðinn. Veruleg hreyfing hafi komist á málið í ágúst 2008 og formleg ákvörðun um starfsemi á Íslandi síðan verið tekin á stjórnarfundi fyrirtækisins fyrir réttum tveimur vikum, 24. febrúar 2009. Ekki er að fullu ljóst með hvaða hætti félagið mun taka til starfa hér á landi en fjórir möguleikar eru í stöðunni: Að hefja beina sölu á vátryggingum, stofna útibú, stofna íslenskt félag í eigu TF eða þá að kaupa starfandi íslenskt félag og kom fram á fundinum að það væri ákjósanlegasti kosturinn að mati færeyinganna. „Álitlegasti kosturinn er sá að kaupa að fullu eða að hluta tryggingafélag í rekstri og ráðamenn TF sjá ýmsa möguleika í þeirri stöðu," segir í tilkynningu frá félaginu. „Þeir hafa undanfarna mánuði rætt við fulltrúa tryggingafélaga, banka og íslenskra stjórnvalda og kynnt áhuga sinn og fyrirætlanir um fjárfestingar í tryggingaþjónustu á Íslandi." Rætur til 19. aldar „Tryggingarfelagið Føroyar á að baki sjö áratuga sögu í tryggingastarfsemi, með rætur í tryggingum allt aftur á 19. öld. Félagið hefur 75-80% markaðshlutdeild í skaðatryggingum í Færeyjum og er mjög stöndugt fjárhagslega," segir ennfremur í tilkynningunni. Félagið býður alhliða tryggingaþjónustu fyrir heimili, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga að líftryggingum þó undanskildum. „Tryggingatakar hjá TF eru um 31.000, þar af um 23.000 fjölskyldur, einstaklingar og heimili, um 2.000 tengdir sjávarútvegi og um 6.000 tengdir öðrum atvinnurekstri. Tryggingatakarnir eru jafnframt eigendur félagsins því TF er gagnkvæmt tryggingafélag (e. mutual insurance company)," segir einnig. Erlend fjárfesting flýtir fyrir endurreisn „Fjárfestingar erlendra fyrirtækja flýta fyrir því að íslenskt samfélag komist á skrið að nýju. Okkur er það því ánægjuefni að tilkynna áform um fjárfestingar í íslensku atvinnulífi, sem vonandi stuðla að því að fá hjól atvinnulífsins til að snúast hraðar og tryggja störf sem fyrir eru eða skapa ný störf," sergir Edvard Heen framkvæmdastjóri TF.
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent