Fjárfest í þremur fyrirtækjum frá Viðskiptasmiðjunni 21. apríl 2009 14:59
Fjárfestingarsjóðir sem sérhæfa sig í sprotafyrirtækjum hafa fjárfest þrisvar á árinu. Nýsköpunarsjóður Atvinnulífsins fjárfesti í Gogoyoko og Frumtak fjárfesti í Trackwell og AGR. Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að taka öll þátt í Viðskiptasmiðjunni - Hraðbraut nýrra fyrirtækja sem rekin er af Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins. Þrjú fyrirtæki úr Viðskiptasmiðjunni voru sérstaklega verðlaunuð á aðalfundi Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins. Aðalfundur Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins var síðasta föstudag, 17. apríl, 2009. Á fundinum var farið yfir síðastliðið starfsár en einnig markaði fundurinn lok 2. annar Viðskiptasmiðjunnar. Í tilkynningu segir að fyrirtækið E-label , sem sérhæfir sig í klæðnaði og tengdum vörum fyrir nútímakonuna, fékk verðlaun fyrir bestan árangur á fyrstu önn en E-label hefur á námstímanum gjörbreytt starfsemi sinni, opnað heildsölu í London og eru í samningaviðræðum við stóran dreifingaraðila í Bretlandi. Trackwell, forðastýringarkerfi fyrir flutningafyrirtæki sem stefnir á Bandaríkjamarkað hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á annarri önn. Fjárfestingarsjóðurinn Frumtak fjárfesti í Trackwell í febrúar síðastliðnum. In Spirit of Iceland hlaut hvatningarverðlaun Viðskiptasmiðjunnar sinnar fyrir framúrskarandi viðskiptaáætlun og spennandi verkefni. Fyrirtækið hjálpar einstaklingum að ná hámarksárangri í lífinu og jafnvægi milli líkama, hugar og anda. Viðskiptasmiðjan - Hraðbraut nýrra fyrirtækja er þekkingarstuðningskerfi fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki. Verkefnið er samstarfsverkefni Klaks - Nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, Háskólans í Reykjavík, Copenhagen Business School, Lund University og Öresund Entrepreneurship Academy. Tilgangur Viðskiptasmiðjunnar er að hjálpa frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum að skapa verðmæti og undirstöður fyrir farsælan fyrirtækjarekstur. Rannsóknir sýna að skortur á viðskiptaþekkingu er einn helsti veikleikinn í uppruna- og vaxtarferli fyrirtækja. Aðrar ástæður eru til dæmis skortur á þekkingu á rekstri sprotafyrirtækja og endurmati á starfseminni, skortur á tenglaneti við sérfræðinga, fjárfesta og aðra frumkvöðla, skortur á hvatningu og uppbyggilegri gagnrýni.
Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira