Royal Court á Guernsey heimilar málsókn gegn neyðarlögunum 16. september 2009 13:54
Umsjónarmenn þrotabús Landsbankans á Guernsey, sem eru frá Deloitte, munu hefja málsókn fyrir íslenskum dómstóli gegn neyðarlögunum fari svo að þeim takist ekki að hámarka endurheimtur fyrir innistæðueigendur bankans á eyjunni. The Royal Court á Guernsey, æðsti dómstóll eyjunnar, hefur nú heimilað umsjónarmönnunum slíka málsókn. Í umfjöllun um málið á vefsíðunni International Adviser segir að umsjónarmennirnir, Rick Garrard og Lee Manning, hafi sent frá sér yfirlýsingu um málið. Í henni kemur fram að beiðni um málsóknina hafi verið send The Royal Court í framhaldi af kosningu meðal kröfuhafa bankans þar sem mikill meirihluti var meðmæltur þessari málsókn. Ennfremur kemur fram að málsóknin yrði þrautarlending hjá umsjónarmönnunum. Henni verði ekki hrint í framkvæmd nema svo fari að innistæðueigendurnir verði metnir sem almennir kröfuhafar en ekki í forgangshóp. Ákvörðun um þetta verður tekin á kröfuhafafundi í Reykjavík þann 23. nóvember n.k. „Við höfum séð hvernig innistæðueigendum hjá Icesave hefur verið bjargað af breskum og hollenskum stjórvöldum," segir í yfirlýsingu Deloitte. „Innistæðueigendur og umsjónarmennirnir (á Gurernsey) eru eðlilega pirraðir og sárir yfir því að þessi stjórnvöld hafa fengið forgang umfram þá. Samkvæmt Deloitte myndi málsóknin, ef af henni verður, beinast að neyðarlögunum sem sett voru í október s.l. Þau lög hafi undanskilið útibú Landsbankans á Guernsey frá forgangslista innistæðueigenda. Í tilkynningunni segir að umsjónarmennirnir hafi orðið fyrir vonbrigðum með að hafa ekki fengið stuðning við fyrirhugaða málsókn frá yfirvöldum á Guernsey, breskum stjórnvöldum, fjármálaráðuneytinu breska, laganefnd breska þingsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Í frétt um málið hér á síðunni í sumar kom m.a. fram að sérstök hagsmunasamtök Icesave innstæðueigenda á eyjunni Guernsey, sem heyrir undir bresku krúnuna, eru æfareið þar sem bresk yfirvöld ætla ekki að ábyrgjast innstæður sparifjáreigendanna að fullu. Sparifjáreigendurnir munu tapa rúmum 1,3 milljörðum króna. Bresk yfirvöld hafa fullyrt að þau muni ábyrgjast allar Icesave innstæður sparifjáreigenda umfram það sem íslensk stjórnvöld hyggjast ábyrgjast en þar er eyjan Guernsey, milli Englands of Frakklands, undanskilin.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Fleiri fréttir Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Sjá meira