Viðskipti innlent

Afar sterk eiginfjárstaða bjargaði Straumi í umrótinu

William Fall, forstjóri Straums segir að afar sterk eiginfjárstaða hefur hjálpað Straumi gegnum umrótið á síðasta ári. Eins og fram hefur komið í fréttum nam tap Straums á síðasta ári 105 milljörðum kr. sem er Íslandsmet.

„Mjög hefur reynt á styrk efnahagsreikningsins, einkum á síðasta fjórðungi ársins vegna virðisrýrnunar lána og gengislækkun eigna. Samt ljúkum við árinu með eiginfjárhlutfalli sem er tvöfalt meira en lögboðið lágmark," segir Fall.

„Sterk áhættustýring og heilindi hafa tryggt að engar færslur eru á efnahagreikningnum sem eru skaðlegar fyrir orðspor félagsins. Með skýrri stefnu, sterkum starfsstöðvum og hreinum efnahagsreikningi, mætum við verkefnum á nýju ári með ákveðni sem mun skila okkur að settu marki."

Í máli Fall kemur fram að markmiðið sé að þróa fjárfestingabanka með alþjóðlega útbreiðslu og hlutfallslega lítinn efnahagsreikning. Áherslan í starfseminni er sem áður á öfluga ráðgjöf, miðlun og rannsóknir.

„Samþætting Teathers við Straum í London er lokið að fullu með tilkomu rúmlega 70 nýrra viðskiptavina og sérstaklega styður greiningardeild Teathers, með áherslu á meðalstór fyrirtæki, vel við starfsemi okkar í öðrum löndum. Wood og Stamford Partners náðu einstaklega góðum árangri á árinu miðað við markaðsaðstæður og eQ hefur viðhaldið markaðshlutdeild sinni við erfið skilyrði," segir Fall.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×