Viðskipti innlent

Nýr við stýri SmartLynx

Ómar Benediktsson
Ómar Benediktsson
Ómar Benediktsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SmartLynx í Lettlandi, dótturfélags Icelandair Group.

Hann tekur við af Eugene O’Reilly sem gegnt hefur starfinu tímabundið. O‘Reilly fer aftur til starfa sem aðstoðarframkvæmdastjóri Icelease, annars dótturfélags Icelandair, að því er segir í tilkynningu.

Ómar lætur af starfi sem varaformaður stjórnar Icelandair Group á aðalfundi í mars. - jab





Fleiri fréttir

Sjá meira


×