Viðskipti innlent

Nýr stjóri hjá dótturfyrirtæki Marel í Bretlandi

Roy Mercer hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri AEW Delford Systems, dótturfyrirtækis Marel Food Systems í Bretlandi, frá og með 1. febrúar n.k.

Í tilkynningu segir að hann taki við af Ásgeiri Ásgeirssyni sem mun nú einbeita sér að fullu að stöðu sinni sem framkvæmdastjóri vöruþróunar, sem hann hefur gegnt samhliða starfi sínu hjá AEW Delford.

 

Roy Mercer hefur starfað sem stjórnunarráðgjafi hjá Marel Food Systems síðan í ársbyrjun 2008. Þar áður stýrði hann skrifstofu Scanvaegt í Bretlandi en þangað réðst hann til starfa árið 1988. Roy hefur mjög víðtæka reynslu í iðnaðinum, bæði á sviði sölu og þjónustu, sem og í almennum rekstri.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×