Lækkun stýrivaxta í 8% gæti tryggt 7.000 fleiri störf 6. febrúar 2009 12:53
Lækkun stýrivaxta í 8% gæti hugsanlega tryggt 7.000 fleiri störf á Íslandi á næsta ári en ella. Í dag eru 13.688 manns atvinnulausir á Íslandi. Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að hröð lækkun vaxta er langmikilvægasta aðgerðin í atvinnumálum sem hægt er að grípa til á Íslandi. Ljóst er að við núverandi vaxtastig verður engin atvinnusköpun þar sem vart finnst sú fjárfesting sem stendur undir því. Það er óeðlilegt ástand að búa við 18% stýrivexti en vegna hins háa vaxtastigs verða engin ný störf til og störfum fækkar jafnframt óðfluga. Vaxtakjör sem bjóðast íslenskum fyrirtækjum eru 21-25% óverðtryggðir útlánsvextir og verðtryggð útlán sem bera 9-14% raunvexti ofan á verðtryggingu. Lán tengd erlendum gjaldmiðlum bjóðast ekki lengur. Þegar Seðlabankinn tók að hækka vexti úr 5% vorið 2004 í 15% í mars 2008 leiddi það til þess að íslensk fyrirtæki tóku í vaxandi mæli að víkja sér undan innlendu vaxtastigi með því að taka gengisbundin lán, þ.e. lán í erlendum gjaldmiðlum með erlendum vöxtum. Gengisbundin lán fyrirtækja námu 73% af skuldum þeirra í mars 2008 en hlutur þeirra var 56% í ársbyrjun 2004. Sama þróun átti sér stað hjá heimilunum þar sem hlutur gengisbundinna skulda þeirra jókst úr 4% heildarskulda í ársbyrjun 2004 í 22% í mars 2008. Þegar lokaðist fyrir aðgang að ódýru erlendu lánsfé lagði innlenda vaxtastigið lamandi hönd á atvinnulífið.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Sjá meira