Matur

Svindlað á Sushi - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Friðriku Geirsdóttur sem eldaði sushi fyrir áhorfendur Stöðvar 2 í sjónvarpsþættinum Ísland í dag.

Aðferð: Skolið hrísgrjónin upp úr köldu vatni og sigtið vatnið vel frá. Setjið hrísgrjónin í pott ásamt 400 ml af vatni og hitið að suðu. Lækkið hitann og látið malla við vægan hita í 10 mínútur. Takið pottinn af hellunni og látið standa í 10 mínútur, bætið þá hrísgrjónaediki og sykri út í. Látið hrísgrjónin kólna við stofuhita.

Klippið Nori blöðin í hentugar stærðið og raðið á diska. Mótið hrísgrjónin með höndunu í litlar kúlur, best er að bleyta hendurnar upp úr köldu vatni svo að grjónin festist síður við þær, og setjið á Nori blöðin.

Raðið agúrkustrimlunum á helminginn af hrísgrjónakúlunum. Skerið laxinn í þunnar sneiðið og leggið ofan á agúrkuna.

Raðið avókadóstrimlunum á afganginn af hrísgrjónakúlunum.

Léttþeytið eggin og setjið brauðmylsnuna í skál. Veltið rækjunum upp úr eggjunum og síðan brauðmylsnunni og djúpsteikjið í 2-3 mínútur eða þar til þær verða gullinbrúnar á lit. Raðið rækjunum ofan á avókadóið.

Berið fram með japanskri sojasósu, sushi engiferi og wasabi.

Uppskrift fyrir 4:

250 g Blue Dragon sushi hrísgrjón

400 ml vatn

2 msk Blue Dragon hrísgrjónaedik

1 msk sykur 

3 Blue Dragon Nori blöð

1 agúrka, skorin í strimla

400 g lax, glænýr, roðfléttur og beinlaus

1 avókadó, afhýddur, kjarnhreinsaður og skorinn í strimla

10 stk risarækjur

2 Stjörnuegg

1 dl Blue Dragon Panko brauðmylsna

Isio olía til djúpsteikingar 

Borið fram með:

Blue Dragon japanskri soja sósu

Blue Dragon sushi engifer

Blue Dragon Wasabi

Léttir réttir Rikku eru á dagskrá Ísland í dag alla miðvikudaga strax að loknum kvöldfréttum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×