Viðskipti innlent

Rúmlega þriðjungur lána ÍLS fór til leiguíbúða í janúar

Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) tæplega 3,6 milljörðum króna í janúar. Þar af voru um 2,2 milljarðar kr. vegna almennra lána og 1,4 milljarðar kr. vegna leiguíbúðalána.

Meðalútlán almennra lána voru um 10,7 milljónir króna í janúar en það er um 14% minna en í fyrra mánuði. Ef miðað er við sama tíma í fyrra þá hafa meðalútlán almennra útlána hækkað um rúmlega 11%.

Í mánaðaryfirliti sjóðsins kemur fram að þann 14. janúar ákvað stjórn Íbúðalánasjóðs að hækka breytilega vexti leiguíbúðalána úr 5,25% í 5,40% frá 1. janúar 2009. Öll leiguíbúðalán í flokki almennra leiguíbúðalána með breytilegum vöxtum munu bera þessa vexti, hvort sem um er að ræða áður tekin lán eða lán sem tekin verða í þessum lánaflokki á næstunni.

Heildarvelta íbúðabréfa í janúar nam rúmum 66,8 milljörðum króna sem er aukning um rúmlega 18% frá fyrra mánuði en 81% lækkun frá sama tíma fyrir ári.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×