Viðskipti innlent

Norrænir seðlabankar tapa milljörðum kr. á samingum við SÍ

Norrænu seðlabankarnir í Danmörku, Svíþjóð og Noregi hafa tapað 4 til 6 milljörðum kr. hver banki á gjaldmiðlaskiptasamningum þeim sem þeir gerðu við Seðlabanka Íslands (SÍ) síðasta vor.

Fjallað er um málið á vefsíðunni business.dk. Þar segir að ef Nationalbanken í Danmörku noti sömu bókhaldsfærslur og Riksbanken í Svíþjóð hvað varðar gjaldmiðlaskiptasamninginn við Ísland nemi tap Nationalbanken af samningnum 236 milljónum danskra kr. eða rúmlega 4,5 milljörðum kr..

Samningurinn sem norrænu seðlabankarnir gerðu við SÍ er einfaldur skiptisamingur þar sem skiptst er á evrum og íslenskum krónum að hámarki 500 milljón evra fyrir hvern norrænu bankanna. Framangreint tap er sökum þess hve íslenska krónan hefur rýrnað í verði á þeim tíma sem SÍ hefur dregið á þessa samninga.

Samkvæmt bókhaldi Riksbanken í Svíþjóð er tapið af gjaldmiðlasamningnum við SÍ bókfært sem 352 milljónir sænskra kr. eða rúmlega 4,5 milljarðar kr.. Þetta tap er sökum þess að Riksbanken hefur látið evrur að verðmæti 2 milljarðar sænskra kr. í skiptum fyrir íslenskar krónur en þær eru nú aðeins 1,6 milljarðar sænskra kr. virði.

Talsmaður Nationalbanken í Danmörku neitaði að svara því í samtali við business.dk hvort bókfært yrði tap af gjaldmiðlaskipasamningum í ársuppgjöri bankans sem birt verður 18. mars n.k..














Fleiri fréttir

Sjá meira


×