Fréttaskýring: Ráðgjöfin í kvótanum ræður úthlutun Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 10. júlí 2009 18:43
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur valið að fara í nær öllu sem máli skiptir eftir ráðgjöf Hafrannsóknar við úthlutun á kvóta fyrir næsta fiskveiðiár. Ráðherrann hefur þó fyrst í samráði við Alþjóða hafrannsóknarráðið ákveðið að leyfilegur hámarksafli af þorski miðist við 20% úr viðmiðunarstofni. Eitt sinn var nokkur sátt um að hafa hlutfallið nokkrum prósentum hærra, þó ekki yfir 25%. Hvað ráðgjöf Hafrannsóknar varðar er hún ekki óskeikul eins og raunar þorskkvótinn nú sýnir. Ráðgjöfin núna er hin sama og kvótinn eða 150.000 tonn. Hafrannsókn hafði þó sitthvað að segja s.l. vetur þegar Einar Kr. Guðfinnsson hækkaði þorskkvótann úr 130.000 tonna ákvörðun sinni upp í 162.500 tonn. Virðist þetta hafa verið að mestu rétt ákvörðun hjá ráðherranum að mati Hafrannsóknar. Raunar útilokar Jón Bjarnason ekki að ákvörðun hans um þorskinn muni breytast á komandi fiskveiðaári..."svo framarlega sem fiskifræðilegar forsendur liggi að baki..."eins og ráðherrann orðar það. Ef rétt er munað voru „fiskifræðilegar forsendur" Einars Kr. Guðfinnssonar fyrir sinni aukningu að mestu upplýsingar frá sjómönnum um að allt væri fullt af þorski á miðunum. Í þessu sambandi er rétt að benda á strandveiðarnar sem nú eru í gangi. Þær eru ekki inni í kvótanum sem stendur. Hlut þeirra á að meta í haust og má reikna með að þessi munur á árunum upp á 12.500 tonn verði notaður til að jafna dæmið út í stað þess að strandveiðarnar dragi úr hlut annarra í 150.000 tonna pottinum. Aðrar ákvarðanir Jóns Bjarnasonar eru skynsamlegar eins og hvað varðar ýsuna enda vitað að sóknin í þá tegund hefur verið nokkuð úr hófi en í takt við samdráttinn í þorskinum og góða stofnstærð undanfarin ár. Ýsukvótinn er lækkaður um 30.000 tonn niður í 63.000 tonn. Ráðgjöfin var ekki langt frá þessu eða í 57.000 tonnum. Hinsvegar er ástæða til að hafa áhyggjur af 12.000 tonna kvóta á grálúðu. Þetta er hlutfallslega lengst frá ráðgjöf Hafrannsóknar sem vildi 7.000 tonna kvóta. Grálúðustofninn er að hruni kominn og spurning hvort þetta mikill kvóti ríði honum að fullu, það er ef hann verður veiddur. Málið virðist snúast um einhvern meting við Grænlendinga um hver eigi að eiga hvað í leifunum af grálúðustofninum. Jákvæðustu fréttirnar eru að Jón Bjarnason hefur ákveðið að leysa skötuselsvanda grásleppukarla fyrir vestan og norðan land. Skötuselur veiðist nú langt frá upphaflegum miðum sínum og það hefur skapað grásleppukörlum utan Suðurlands mikinn vanda. Þeir fá skötuselinn sem meðafla í net sín en geta ekki keypt kvóta á móti svo þeir geti komið með skötuselinn í land. Skötuselskvótinn er 3.000 tonn á þessu fiskveiðaári en verður 2.500 tonn á því næsta samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknar. Muninn þar á milli eða 500 tonn munu grásleppukarlarnir fá til þess að geta stundað veiðar sínar án áhyggna af þessari fisktegund.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira