Breytingar á stjórn Seðlabankans auka trúverðugleika bankans 5. febrúar 2009 12:20
Greining Glitnis telur að breytingar á stjórn Seðlabankans séu til þess fallnar að auka trúverðugleika Seðlabankans innan lands sem utan, en aukinn trúverðugleiki á íslensku fjármálakerfi er afar mikil vægur þáttur í endurreisn efnahagslífsins á komandi misserum. Greining fjallar um nýtt frumvarp um breytingarnar í Morgunkorni sínu. Þar segir að aðkoma utanaðkomandi sérfræðinga er jákvætt skref í þessa átt, auk þess sem líklegt er að annað af þeim tveimur nefndarsætum sem ætlað er yfirmönnum bankans komi í hlut aðalhagfræðings bankans. Ætti það að draga úr þeim mun sem á stundum hefur virst vera á skoðun bankastjórnar annars vegar, og fræðimanna bankans hins vegar, á framkvæmd peningastefnunnar undanfarin misseri. Ákvarðanir um beitingu helstu stjórntækja Seðlabankans í peningamálum, þar á meðal stýrivaxta, verða framvegis í höndum fimm manna peningastefnunefndar. Slíkt fyrirkomulag tíðkast víða meðal seðlabanka og má þar nefna Noregsbanka, Englandsbanka og seðlabanka Japans. Seðlabankastjóri verður formaður nefndarinnar en auk hans sitja tveir af yfirmönnum bankans á sviði peningamála í henni og tveir sérfræðingar sem seðlabankastjóri skipar að fenginni staðfestingu forsætisráðherra. Er sérstaklega tekið fram í skýringum með frumvarpinu að seðlabankastjóri geti skipað utanaðkomandi sérfræðinga, erlenda jafnt sem innlenda, í þau tvö nefndarsæti sem ekki koma í hlut yfirmanna bankans.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira