Bakkavör fær 104 milljónir punda frá Kaupþingi 5. febrúar 2009 09:00
Bakkavör hefur nú innleyst 104 milljónir punda, eða um 17 milljarða kr., af reikningi félagsins hjá Nýja Kaupþingi banka en upphafleg fjárhæð nam 150 milljónum punda. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Samkvæmt samkomulagi við Nýja Kaupþing banka mun innstæðan fást leyst út að fullu um miðjan apríl. Þessir fjármunir nýtast einkum til greiðslu af 700 milljóna punda, eða um 118 milljarða kr. sambankaláni félagsins. Viðræður við skuldabréfaeigendur, aðila að 700 milljón punda sambankaláni félagsins og aðra skammtímalánveitendur halda áfram og er stjórnin þess fullviss að félagið njóti áfram stuðnings þeirra. Nánari skil verða gerð á stöðu ofangreindra mála við birtingu ársuppgjörs félagsins í mars. Síðasti ársfjórðungur 2008 einkenndist einnig af óróleika á fjármálamörkuðum og nam tap Bakkavarar vegna þess um rúmlega 23 milljörðum kr. m.v. gengi pundsins um áramót. Varð 28 milljóna punda tap á vaxtaskiptasamningum og 23 milljóna punda gengistap af lánum félagsins í evrum og dollurum. Hvorugur þessara liða hefur áhrif á sjóðstreymi félagsins. Þessi kostnaður bætist við annan einskiptiskostnað sem áður hefur verið tilkynnt um, annars vegar vegna 20 milljón punda gjaldfærslu skatta vegna afnáms skattaívilnunar af iðnaðarhúsnæði í Bretlandi og hins vegar vegna taps á fjárfestingum í Greencore Group PLC og Camposol sem nemur samtals 63 milljónum punda. Áætlaður kostnaður vegna hagræðingaraðgerða á árinu 2008 nemur 19 milljónum punda en auk þess verða færðar til gjalda 23 milljónir punda í virðisrýrnun eigna sem þessu tengjast. Gert er ráð fyrir að jákvæð áhrif þessara aðgerða muni á árinu 2009 vega að fullu upp beinan kostnað sem féll á árinu 2008 Stefna félagsins er að auka hagkvæmni í rekstri og hefur það undanfarið fylgt viðamikilli hagræðingaráætlun, m.a. með endurskipulagningu og lokunum verksmiðja, með það að markmiði að draga úr rekstrarkostnaði. Félagið er því vel í stakk búið til að bregðast við breyttri eftirspurn vegna versnandi efnahagsástands á mörkuðum félagsins.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Sjá meira