Viðskipti innlent

Glitnir býður tímabundna 50% lækkun á bílasamningum í erlendri mynt

Glitnir Fjármögnun hefur ákveðið að bjóða þeim viðskiptavinum sem eru með bílasamninga í erlendri mynt skilmálabreytingu sem felur í sér tímabundna lækkun á leigugreiðslu í 8 mánuði og lengingu á samningi um fjóra mánuði.

Í tilkynningu um málið segir að lækkunin sé um 50% miðað við fulla leigugreiðslu í janúar 2009 og verður greiðslan föst krónutala þá 8 mánuði sem um ræðir. Hingað til hefur Glitnir Fjármögnun boðið viðskiptavinum sínum sem eru með bílasamninga í erlendri mynt að greiða eingöngu vexti af samningnum.

Dæmi: Leigugreiðsla sem var kr. 100.000 í janúar 2008 var orðin u.þ.b. kr. 175.000 í janúar 2009. Lækkun á leigugreiðslum um 50% miðað við janúar 2009, þýðir að leigugreiðslan verður kr. 87.500 næstu átta mánuði.

Þessi breyting er þeim sem eru að fá skilmálabreytingu í fyrsta skipti að kostnaðarlausu en kostar kr. 2.900 fyrir þá sem eru að fá breytingu í annað sinn. Hægt verður að sækja um þessa skilmálabreytingu á heimasíðu Glitnis fjármögnunar frá og með þriðjudeginum 17. febrúar.

,,Það er ljóst að gríðarleg veiking krónunnar hefur haft afar neikvæð áhrif á marga af okkar viðskiptavinum. Margir þeirra hafa orðið fyrir kjaraskerðingu vegna atvinnumissis, skertra launa eða lægra starfshlutfalls og hefur greiðslugeta þeirra því minnkað samfara því.," segir Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Glitnis fjármögnunar. +

„Við höfum á síðustu mánuðum unnið að skilmálabreytingum fyrir fjölmarga viðskiptavini okkar. Með þessari lausn erum við að reyna að koma enn frekar til móts við þarfir þeirra."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×