Áform um að létta gjaldeyrishömlum í fyrstu endurskoðun AGS 13. febrúar 2009 11:03
Heildarmat á skilvirkni hamlanna á gjaldeyrismarkaði og áform um að aflétta þeim smám saman verður hluti af fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda sem unnin er í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) núna í febrúar. Greining Glitnis fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að slík tímaáætlun um afnám haftanna mun ráðast af því hvernig til tekst með framkvæmd skilyrða sem áður hafa verið skilgreind, svo sem með stöðugleika gengisins, horfur á greiðslujöfnuði og stöðu gjaldeyrisforðans. Kemur þetta fram í áfangaskýrslu AGS um stöðu efnahagsáætlunarinnar. Skýrslan var samin í kjölfar heimsóknar sendinefndar sjóðsins daganna 15.-19. desember síðastliðinn og birt í gær. Ljóst er að afnám haftanna er ein af forsendum fyrir lækkun stýrivaxta. Í ofangreindri skýrslu segir AGS að stjórnvöld og fulltrúar sjóðsins séu sammála um að of snemmt sé að huga að lækkun. Þótt gengið sé orðið stöðugt geta hlutir auðveldlega snúist til verri vegar. Enn á eftir að draga úr verðbólguþrýstingi og ekki hefur enn verið gerð áætlun um að leggja niður hömlur á fjármagnsflutningum milli landa. Kemur það fram í skýrslu AGS að sjóðurinn telur líklegt að kostnaður ríkissjóðs af hruni bankanna í október verði lægri en sjóðurinn taldi í upphafi. Reiknaði sjóðurinn með því að kostnaðurinn færi upp í 83% af landsframleiðslu brúttó og 55% af landsframleiðslu nettó. Var í þessari áætlun gert ráð fyrir því að kostnaður vegna erlendra innlánstrygginga yrði 47% af landsframleiðslu en að nettókostnaður þess yrði um 19% af landsframleiðslu. Nú segir sjóðurinn að tryggð innlán í útibúum bankanna í Bretlandi, Hollandi og Þýskalandi eru talin nema 5,8 milljörðum dollara, eða rúmlega 600 milljörðum kr. en í upphafi hafi sjóðurinn áætlað að þetta yrði 8,2 milljarðar dollara. Að hluta stafar þetta af því að tekist hefur að aðskilja útibú í öðrum löndum og greiða innlán með endurheimtum eignum. Þetta lækkar ofangreint heildarmat á kostnaði ríkissjóðs af hruni bankanna úr 83% af landsframleiðslu brúttó niður í 69%. Nettó fer matið þá niður í 41%.
Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira