Viðskipti innlent

Fulltrúi AGS á Íslandi er ríkisborgari í Swazilandi

Franek Rozwadowski sem skipaður hefur verið fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi er með tvöfaldan ríkisborgararétt. Annarsvegar frá heimalandi sínu, Póllandi, og hinsvegar í Swazilandi í Afríku.

AGS mun opna skrifstofu á Íslandi í næsta mánuði sem verður undir stjórn Rozwadowski. Samkvæmt upplýsingum frá AGS kom Rozwadowski til sjóðsins árið 1999 og hefur hann gengt fjölda starfa fyrir sjóðinn síðan í Afríku og Evrópu. Ríkisborgarréttur hans í Swazilandi er tilkominn vegna starfa hans fyrir sjóðinn þar í landi.

AGS heldur nú úti skrifstofum, svipaði þeirri íslensku, í 80 löndum víða um heiminn. Starf Rozwadowski mun einkum felast í viðræðum við stjórnvöld um mótun efnahagsstefnunnar og að vera tengiliður við höfuðstöðvar AGS í Washington um íslensk málefni.

Honum er einnig ætlað að fylgjast með efnahagsþróuninni, samræma tæknilega aðstoð og skiptast á skoðunum við íslensk stjórnvöld.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×