Viðskipti innlent

Fasteignakaupendur mjög jákvæðir gagnvart ÍLS

Í viðhorfskönnun meðal fasteignakaupenda sem Capacent Gallup gerði nýlega kemur fram að 94,1% þeirra eru jákvæðir gagnvart Íbúðalánasjóði.

Í tilkynningu um málið segir að jákvæðni gagnvart sjóðnum meðal fasteignakaupenda hefur aldrei verið meiri frá því að slíkar mælingar hófust. 95% fasteignakaupenda telja nú að Íbúðalánasjóður eigi að starfa áfram í óbreyttri mynd, en rúm 81 prósent voru þeirrar skoðunar í ársbyrjun 2006.

Rösklega 82 af hundraði sögðust hlynntir því að ríkið styddi við húsnæðiskaup eignalítilla og tekjulágra einstaklinga.

Spurt var í könnuninni hve hátt hlutfall af kaupverði verðtryggð húsnæðislán ættu að vera að hámarki. Flestir, eða 46%, töldu að hlutfallið ætti að vera 76-85%. Þá var spurt um hámarksfjárhæð húsnæðislána og vildi þriðjungur þeirra sem svöruðu að hún væri 16-20 milljónir króna, en tæpur þriðjungur taldi að lánsfjárhæðin ætti að vera 26 milljónir króna eða meira.

Langflestir, 78,8%, tóku lán til íbúðakaupanna hjá Íbúðalánasjóði, en í sambærilegri könnun um mitt ár 2007 sögðust 46,3% hafa tekið lán hjá sjóðnum.

Tveir þriðju þeirra sem áttu tvær fasteignir náðu að selja aðra þeirra, en þriðjungi tókst það ekki. 45,6% töldu mjög litlar líkur á að þeim tækist að selja aðra fasteignina á næstu 6 mánuðum og 25,3% töldu frekar litlar líkur á því. Samtals töldu því 70,9% litlar líkur á önnur fasteignin seldist á næstu mánuðum. 23,5% þeirra sem tóku ný lán við fjármögnun á húsnæði töldu líklegt að þeir lentu í greiðsluerfiðleikum vegna afborgana af nýja húsnæðinu.

Þegar spurt var hvaða úrræði hentaði best þeim sem lenda í greiðsluerfiðleikum með fasteignalán sögðu 43,9 % að það væri afnám verðtryggingar á lánum. 31,7% töldu frystingu afborgana um ákveðinn tíma besta úrræðið.

Spurt var um viðhorf til þess að húsnæðislán sem ekki eru hjá Íbúðalánasjóði yrðu flutt þangað. 68,8% sögðust ánægðir með slíka ráðstöfun.

Könnunin var gerð dagana 25. nóvember til 15. desember 2008 meðal 1200 einstaklinga sem keyptu fasteign á tímabilinu júní til október 2008. Svarhlutfall var 48,6%.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×