Viðskipti innlent

Fjöldi heimila með neikvæða eiginfjárstöðu fjórfaldast

Í árslok 2007 voru um 7.500 heimili með um 3,1 milljónir kr. að meðaltali í neikvæðu eigin fé. Nú er áætlað að þau verði orðin um 28.500 talsins með um 6,4 milljónir kr. að meðaltali í neikvæðu eigin fé í árslok 2009. Þetta er fjórfjöldun á fjölda heimila og tvöföldun á upphæðinni.

Fjallað er um málið í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar segir að þessi þróun segi þó ekki til um greiðslubyrði heimilanna, en benda má á upplýsingar á heimasíðu Seðlabankans hvað það atriði varðar.

Í árslok 2007 nam íbúðareign samkvæmt fasteignamati 2.432 milljarðar kr. en íbúðaskuld 862 milljarðar kr. Um 100.000 heimili voru skráð fyrir íbúð. Þar af skulduðu 27.000 heimili ekkert í íbúðum sínum, en 17.500 fjölskyldur skulduðu sem nam 80% eða meira.

Ef hinir skuldlausu eru undanskildir áttu 73 þúsund fjölskyldur húsnæði metið á 1.830 milljarða kr. en skuldir að upphæð 861 milljarða kr. Eiginfjárhlutfall þessara 73 þúsund fjölskyldna var 53% í árslok 2007 og áætlað um 40% í árslok 2008, og lauslega er áætlað að það verði komið í 27% í árslok 2009.

Þróunin hefur haft mikil áhrif á fjárhagslega stöðu heimilanna, en mest hjá þeim sem mikið skulda. Til viðbótar við rýrnandi kaupmátt og aukið atvinnuleysi hefur aukning skulda og minnkandi íbúðaauður áhrif til að draga úr vilja heimilanna eða getu til að taka lán. Því hefur þrengt að neyslugetu margra fjölskyldna og gert þær viðkvæmar fyrir frekari sveiflum.

Aðgerðir stjórnvalda til að halda greiðslubyrði íbúðalána í skefjum eru ígildi lánafyrirgreiðslu og hjálpa mörgum yfir erfiðasta hjallann. Í heild er áætlað að meðaleign íslenskra fjölskyldna í íbúðarhúsnæði lækki úr 15,7 milljónum kr. í 9,7 milljónir kr. á tveimur árum sem er 38% lækkun að nafnverði og 50% að raungildi.

Nettó eign jókst þrátt fyrir aukna skuldsetningu þegar húsnæðisverð hækkaði, en nú stuðlar lækkun íbúðaverðs og hækkun skulda að lækkun eiginfjárhlutfallsins. Reynslan bendir til að fasteignamarkaðurinn og skuldir heimila nái jafnvægi þegar tekjur taka að aukast á ný. Því má telja líklegt að íbúðaverð og eiginfjárhlutfall fari hækkandi eftir nokkur ár.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×