"Viðvörunarljósin gegn ESB-aðild Íslands loga skært" 4. febrúar 2009 09:28 „
Viðvörunarljósin gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu loga skært. Ímyndið ykkur stöðu ykkar innan ESB ef sambandið ákvæði einn daginn að nýta fiskistofnana ykkar í þágu aðildarríkjanna allra," segir Daniel Hannan, þingmaður breska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, í samtali við Útveginn. "Hugmyndir ykkar um fullveldisrétt myndu þá reynast léttvægar. Þar er reynsla Íra frá því í síðustu viku gott dæmi," Greint er frá þessu á vefsíðu LÍÚ. Þar segir að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sendi fyrir helgina út rökstudda álitsgerð þar sem Írum er skipað að breyta löggjöf sinni þannig að hægt sé að nýta olíuauðlindir þeirra í þágu aðildarríkjanna ef nauðsyn krefur til. Írsk stjórnvöld hafa tvo mánuði til að bregðast við, að öðrum kosti verður þeim stefnt fyrir dómstól Evrópusambandsins. Stjórn sambandsins er mikið í mun að tryggja öryggi þess í orkumálum, ekki síst í ljósi þess hve óþægilega háð það er orðið Rússlandi, sem sér því fyrir fjórðungi af gasþörf aðildarríkjanna. Daily Express birti fyrir nokkrum vikum frétt um það sem blaðið kallaði „leynilega valdheimild" í Lissabonsáttmálanum til að komast yfir olíu- og gaslindir Breta og Hollendinga. Fréttinni, sem m.a. birtist m.a. á Stöð 2 og visir.is, var harðlega mótmælt sem rangri af Percy Westerlund, sendiherra og yfirmanni fastanefndar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gagnvart Noregi og Íslandi. Daniel Hannan segir það fullkomlega ljóst í sínum huga, að samkvæmt Lissabonsáttmálanum hafi Evrópusambandið lagasetningarvald sem geri því kleift að yfirtaka orkuauðlindir einstakra aðildarríkja til að tryggja heildarhagsmuni. „Evrópusambandið hefur þennan rétt og lög þess eru æðri lögum einstakra aðildarríkja eins og dæmið frá Írlandi sýnir vel. Íslendingar, sem eiga svo mikið undir fiskveiðiauðlindum sínum, ættu að hugleiða þetta alvarlega. Ef þið gerist aðilar að ESB er valdið úr ykkar höndum," segir Hannan.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira