Sátt um 19. aldar götumynd á Laugavegi 8. janúar 2009 12:56 Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri.
Afstaða meirihlutans í Reykjavík til skipulags og uppbyggingar á reitnum Laugavegi 4 til 6 hefur ekkert breyst. Á síðasta sumri hafi náðst góð sátt um skipulag á reitnum í anda þeirrar götumyndar sem mikilvægt sé að standa vörð um á þessum stað. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, spurði um skipulag á reitnum á fundi borgarráðs í morgun vegna fréttar í Fréttablaðinu í dag þar sem fram kemur að Reykjavíkurborg ætli að selja húsin til verktaka. Borgin keypti húsin í fyrra á 580 milljónir króna og var tekist á um kaupin sem þótt umdeild. Ólafur spurði á fundinum hvort að borgaryfivöld ætluðu ekki að ekki standa við áður gefin fyrirheit um uppbyggingu við húsanna í anda þeirrar 19. aldar götumyndar sem enn sé hægt að varðveita neðst á Laugaveginum. Komið í veg fyrir friðun „Varðandi það hver mun byggja upp á reitnum, þá hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvort Reykjavíkurborg mun sjálf byggja upp skv. því skipulagi eða hvort aðrir koma að því," segir í bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Umrædd frétt virðist því byggð á misskilningi hvað þetta varðar, að mati meirihlutans. Fulltrúar Samfylkingarinnar lögðu í framhaldinu fram fyrirspurn í fjórum liðum, líkt og sagt var frá hér á Vísi fyrr í dag. Þeir héldu því jafnframt fram að með kaupunum hafi verið komið í veg fyrir friðun húsanna sem var í formlegu ferli og beið ákvörðunar menntamálaráðherra. Sjálfstæðismenn hafi notað 580 milljónir úr borgarsjóði við kaupin. „Framsóknarverktakabílastæðahúsamenning" Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans. Ólafur sagðist í kjölfarið hafa allt frá árinu 2003 beitt sér gegn þeirri „framsóknarverktakabílastæða- húsamenningu" sem réði ríkjum í skipulagi borgarinnar í valdatíð R-listans. „Ef menningarverðmætum hefði verið varpað á glæ eins og útlit var fyrir hefði tjónið á menningararfinum vart verið metið til fjár auk þeirra afleiðinga sem það hefði haft á mannlíf, atvinnustarfsemi og ferðaiðnað við Laugaveg. Undirritaður lagði til þegar árið 2005 að kaupa byggingar- og skipulagsréttinn við Laugaveg 4-6," segir í bókun Ólafs.
Tengdar fréttir Minnisvarði um misnotkun sjálfstæðismanna Húsin að Laugavegi 4 og 6 munu standa óhreyfð næstu ár og eru minnisvarði um misnotkun sjálfstæðismanna, að mati Dags B. Eggertssonar oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn. 8. janúar 2009 11:30 Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Rafmagnslaust í Mosfellsbæ Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Sjá meira
Minnisvarði um misnotkun sjálfstæðismanna Húsin að Laugavegi 4 og 6 munu standa óhreyfð næstu ár og eru minnisvarði um misnotkun sjálfstæðismanna, að mati Dags B. Eggertssonar oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn. 8. janúar 2009 11:30