Viðskipti innlent

Eignir lífeyrissjóðanna jukust um tæpa 46 milljarða í ágúst

Hrein eign lífeyrissjóðanna var 1.779 milljarðar kr. í lok ágúst sl. og hækkaði um 45,9 milljarða kr. í mánuðinum. Sé miðað við ágúst 2008 hefur hrein eign hins vegar lækkað um 44,6 milljarða kr. eða 2,4 %.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að sú lækkun skýrist af stærstum hluta af þeim miklu sviptingum sem áttu sér stað á íslenskum fjármálamörkuðum í október 2008. Vert er að taka fram að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×