Nýi Landsbankinn tekur yfir 60% hlutafjár í Teymi Ingimar Karl Helgason skrifar 17. apríl 2009 18:30
Nýi Landsbankinn tekur yfir hátt í sextíu prósent hlutafjár í Teymi, aðrir bankar taka rest. Skuldir félagsins eru vel á fimmta tug milljarða króna. Þar af eru um þrjátíu milljarðar án veðs. Teymi er móðurfélag margra fyrirtækja. Í þeim hópi eru fjarskiptafyrirtækin Vodafone og Tal og upplýsingatæknifyrirtækin Skýrr, EJS og Kögun. Skuldastaða félagsins var orðin mjög slæm, að því er fram kemur í frumvarpi til nauðasaminga sem birtist á vef kauphallarinnar í dag. Félagið stendur ekki undir greiðslum, þótt reksturinn sé góður. Skuldir félagsins og ábyrgðir sem það er í, nema samtals tæplega fjörutíu og tveimur og hálfum milljarði króna. Samkvæmt sömu gögnum kemur fram að um þrjátiu milljarðar þessara skulda séu án veðs. Skuldum fyrir tæplega 29 milljarða króna verður breytt í hlutafé en félagið skuldar áfram á fjórtánda milljarð króna. Helstu kröfuhafar verða hluthafar í félaginu. Landsbankinn tekur hátt í sextíu prósenta hlut. Straumur, Íslandsbanki og aðrir kröfuhafar minna. Í eigandahópnum voru félög í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Pálma Haraldssonar, Karls Wernerssonar, Þorsteins M. Jónssonar og Magnúsar Ármanns. Nafnverð hlutafjárins var um þrír milljarðar króna. Það verður núllað út. Óvíst er hversu miklar skuldir voru á bak við hlutafjáreignina.
Mest lesið „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira