Spyr hvort Peningastefnunefnd telji of skammt gengið 4. júlí 2009 10:01
Viðskiptaráð Íslands veltir fyrir sér þeirri spurningu hvort Peningastefnunefnd Seðlabankans telji að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum gangi of skammt. Þetta kemur fram í umfjöllun um síðustu stýrivaxtaákvörðun á heimasíðu ráðsins. Þar segir að í ljósi þess hversu augljós þörf er á frekari lækkun vaxta fyrir atvinnulíf og heimili almennt valdi ákvörðun peningastefnunefndar um óbreytta stýrivexti verulegum vonbrigðum. Eins og kemur fram í yfirlýsingu nefndarinnar þá hefur töluvert miðað áleiðis á nokkrum mikilvægum vígstöðum, en þar bera ráðstafanir í ríkisfjármálum til skemmri tíma og langtímaáætlun um aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum hæst. Við síðustu vaxtaákvörðun í júní taldi nefndin einmitt þessar aðgerðir vera grundvöll þess að endurheimta traust markaðarins svo svigrúm yrði skapað til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds.Þrátt fyrir mikilvægi þessara aðgerða þá virðast þær þannig hafa haft takmörkuð áhrif á vaxtaákvörðun peningastefnunefndar í vikunni. „Þetta vekur eðlilega upp spurningar hvort nefndin telji aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi gengið of skammt," segir á heimasíðunni. Ljóst er að raunvextir eru enn óþægilega háir og verða að lækka verulega og sem allra hraðast til þess að auka flæði súrefnis inn í rekstrarumhverfi fyrirtækja, sem er afar bágborið þessa stundina. Til skemmri tíma er þetta eitt helsta hagsmunamál íslenskra fyrirtækja og heimila. Vonir Viðskiptaráðs standa því til þess að í næsta skrefi, í ágúst, verði vextir lækkaðir undir 10%. Það er hins vegar að mestu undir aðgerðum ríkisstjórnar komið hvort það verði reyndin eður ei.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira