Innlend hlutabréfaeign lífeyrissjóðanna rýrnaði um 88% 11. febrúar 2009 12:14
Greining Glitnis segir að það veki litla undrun að af einstökum eignum lífeyrissjóðanna er það eign þeirra í innlendum hlutabréfum sem hefur tekið hvað mestum breytingum frá hruni bankanna. Eign þessi stóð í 239 milljörðum kr. í upphafi síðastliðins árs en var komin niður í tæplega 30 milljarða í lok árs. Lækkunin er 209 milljarða kr. eða 88%. Einnig er talsverð lækkun á eign sjóðanna í innlendum verðbréfasjóðum en sú eign fer úr 149 milljörðum kr. í upphafi síðastliðins ár niður í 124 milljarða kr. í lok árs. Lækkunin er 17%. Þá rýrna einnig eignir sjóðanna í skuldabréfum bankanna en þær lækkuðu um tæplega 14% á tímabilinu. Fjallað er um stöðu lífeyrissjóðanna í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris var 1.658 milljarða kr. í lok árs í fyrra og hafði þá lækkað um 10% frá hruni bankanna en í lok september síðastliðins var eign þessi 1.839 milljarðar kr. Þrátt fyrir rýrnunina eru eignirnar viðlíka því sem þær voru í upphafi síðastliðins árs en þá voru þær 1.697 milljarða kr. og hafa þær því ekki rýrnað nema um ríflega 2% á tímabilinu að nafnverði. Hins vegar hefur verðbólga verið umtalsverð á tímabilinu og þegar það er reiknað inn í hafa eignir sjóðanna rýrnað að raunvirði um ríflega 20%. Seðlabankinn segir að enn sé nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna. Líklegt er að sú óvissa sé til lækkunar á hreinni eign þeirra til greiðslu lífeyris. Skerðing á lífeyrisréttindum blasir því við, hjá sumum sjóðanna að minnsta kosti. Skerðing verður ekki hjá lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna en sjóðir þeirra sem starfa á almennum vinnumarkaði munu eflaust margir þurfa að skerða réttindin.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira