Viðskipti innlent

Nýskráningum ökutækja fækkar um 87% frá í fyrra

Það sem af er árinu hafa 444 ökutæki verið nýskráð miðað við 3415 ökutæki eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Þetta er 87,0 % lækkun milli ára.

Þetta kemur fram í samantekt sem Umferðarstofa hefur gert um fjölda nýskráninga og eigendaskipta ökutækja frá áramótum til síðustu helgar borið saman við sama tímabil í fyrra.

Það sem af er árinu hafa 8349 eigendaskipti verið gerð á ökutækjum miðað við 11368 eigendaskipti eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Þetta er 26,6% lækkun milli ára.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×