Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar um 48% milli ára

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 259 en fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 voru gjaldþrotin 175 sem jafngildir 48% aukningu milli ára.

Í mars 2009 voru 98 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 78 fyrirtæki í mars 2008, sem jafngildir tæplega 26% aukningu á milli ára.

Upplýsingar um málið eru birtar á vefsíðu Hagstofunnar í dag. Þar segir að eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot eða 22 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 15 í heild- og smásöluverslun.

 

 

 












Fleiri fréttir

Sjá meira


×