SA vill endurskoða stýrivexti fyrr en áformað er 24. mars 2009 12:42
Nýjasta verðbólgumæling Hagstofunnar hlýtur að koma Seðlabankanum verulega á óvart, segir í frétt á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins (SA). Hjöðnun verðbólgu er mun hraðari en hann virðist hafa gert ráð fyrir og það hlýtur að leiða til þess að stýrivextir verði endurskoðaðir fyrr en áformað var. Í fréttini segir að verðlag lækkaði í mars um 0,6% frá fyrra mánuði. Við það hjaðnaði verðbólgan, þ.e. verðlagshækkun síðustu 12 mánaða, í 15,2%. Í þeirri tölu vegur gríðarleg hækkun í apríl í fyrra þungt, en þá hækkaði verðlag um 3,4% milli mánaða og 4,2% án húsnæðisliðar. Ef hækkunin í næsta mánuði verður óveruleg, en aðstæður hérlendis sem erlendis benda til þess, þá fellur 12 mánaða verðbólga niður í 11-12%. Þegar litið er til skemmri tíma en 12 mánaða er verðbólgan mun minni. Árshraði verðbólgu síðustu þriggja mánaða er 1,9% og árshraði síðustu sex mánaða er 12,4%. Í næstu mælingu Hagstofunnar má búast við því að árshraði þriggja mánaða breytingar nálgist núll og sex mánaða breytingin verði komin í eins stafs tölu. Hjöðnun vísitölunnar án húsnæðisliðarins verður heldur hægari en þó stefnir í að 12 mánaða verðbólgan á þann mælikvarða verði komin í eins stafs tölu í haust og ársverðbólga þriggja og sex mánaða muni sýna verðstöðugleika um mitt ár eða síðla sumars. Peningastefnunefnd Seðlabankans sagði í rökstuðningi sínum fyrir 1% lækkun stýrivaxta þann 19. mars síðastliðinn að verðbólguþrýstingur hefði verið á undanhaldi og því væri tímabært að draga gætilega úr peningalegu aðhaldi. Þetta er ónákvæm lýsing á núverandi aðstæðum þar sem flestar vísbendingar benda til þess að verðbólguþrýstingur sé horfinn og framundan sé verðstöðugleiki og jafnvel verðlækkun.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira