Deilan um eignir og skuldir Exista við Kaupþing fyrir dóm Sigríður Mogensen skrifar 6. júní 2009 19:15
Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings hafa gert samkomulag við Exista um að dómstólaleiðin skuli farin til að skera úr um hvernig kröfur verða gerðar upp. Við sögðum frá því í fréttum okkar nú í lok maí að deilur stæðu yfir milli Exista og skilanefnda gömlu bankanna ásamt Nýja Kaupþings um það hvernig gera eigi upp eignir og skuldir. Deilurnar snúast um kröfur sem skilanefndir Kaupþings, Landsbankans og Glitnis ásamt Nýja Kaupþingi telja sig eiga á hendur Exista. Kröfurnar eru meðal annars tilkomnar vegna gjaldmiðlaskiptasamninga, en deilur eru um á hvaða gengi eigi að gera þá upp. Tugir milljarða eru í húfi. Forsvarsmenn Exista telja að eignir og skuldir milli bankanna og félagsins hafi jafnast út við þrot bankanna. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður félagsins, sagði í samtali við fréttastofu þann 26. maí að ljóst væri að málið myndi enda fyrir dómstólum. Skilanefnd Glitnis hefur nú gjaldfellt kröfur sínar á Exista. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur engin ákvörðun verið tekin ennþá hjá skilanefnd Landsbankans um hvort þeir hyggist gera slíkt hið sama. Viðræður séu í gangi um lausn á málinu. Heimildir fréttastofu herma hins vegar að Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings hafi náð samkomulagi við félagið um að dómstólaleiðin skuli farin til að komast að niðurstöðu um hvernig skuldajöfnun fari fram.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira