Afskrift lána Björgólfsfeðga: „Ég skil þetta ekki“ Gunnar Örn Jónsson skrifar 7. júlí 2009 10:13 „
Það eru engar forsendur fyrir því að afskrifa þetta lán," segir Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands. „Ég hef ekki hugmynd um hvort þeir geti borgað þetta lán en ef þeir geta borgað, af hverju á þá að afskrifa það? Það verður að reyna á það hvort þeir geti greitt lánið en það er ekki hægt að semja um afskrift á láninu, þetta á hreinlega að fara í innheimtu og fyrir dómstóla," segir Vilhjálmur. Eins og kom fram á forsíðu Fréttablaðsins í morgun, vilja Björgólfsfeðgar að Kaupþing afskrifi þrjá milljarða af sex milljarða króna skuld þeirra við bankann. Vilhjálmur vitnaði til viðtals Stöðvar 2 við Ásgeir Friðgeirsson, talsmanns Björgólfsfeðga, frá 7. október þar sem hann talar um hversu sterkur fjárfestir Björgólfur Thor Björgólfsson er. „Það er mikilvægt að hafa það í huga að Björgólfur Thor og Björgólfur Guðmundsson eru alþjóðlegir fjárfestar að ógleymdri mjög sterkri stöðu Björgólfs Thors í Novator Properties," sagði Ásgeir og benti að lokum á að engin hætta væri á því að Björgólfur Thor færi á hausinn. Vilhjálmur segir lánið vera eðlilega kröfu Kaupþings og slík mál eigi að fara dómstólaleiðina. „Ég skil þetta mál hreinlega ekki. Skilanefndin hefur ekkert leyfi til að afskrifa þetta lán fyrr en eftir árangurslaust fjárnám og aðrar fullnustuaðgerðir," segir Vilhjálmur Bjarnason í viðtali við Vísi. Auk þess, sagði hann að málefni um lán til starfsmanna Kaupþings væru endaleysa og engin ástæða til að fella þær kröfur niður fyrr en dómstólar hafi útkljáð þau mál. Grein Fréttablaðsins má sjá hér.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira