Spá því að viðskiptahallinn verði sex sinnum minni en í fyrra 27. ágúst 2009 12:11
Halli verður á viðskiptum við útlönd í ár upp á 6,8% af landsframleiðslu samkvæmt nýjustu spá Seðlabankans. Þetta er um 95 milljarðar kr. en til samanburðar var ríflega 625 milljarða kr. halli á viðskiptum við útlönd í fyrra, eða 43% af landsframleiðslu sem var sögulegt met hér á landi. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að verulega miklar breytingar eru því að eiga sér stað í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar um þessar mundir og hagkerfið þannig að þróast í átt til betra ytra jafnvægis. Ríflega 49 milljarða kr. viðskiptahalli var á fyrsta ársfjórðungi í ár og skilaði sér þannig á einum ársfjórðungi ríflega helmingur af spáðum viðskiptahalla ársins. Í dag mun Seðlabankinn birta tölur fyrir annan ársfjórðung. Vitað er að tæplega 26 milljarða kr. afgangur var á vöru- og þjónustujöfnuði á ársfjórðunginum en þáttajöfnuðurinn er enn óljós. Afgangur var einnig á vöru- og þjónustujöfnuði á fyrsta ársfjórðungi og þá upp á tæplega 12 milljarða kr., en halli upp á ríflega 59 milljarða kr. á þáttajöfnuði gerði viðskipajöfnuðinn neikvæðan. Líklega hefur staðan verið með viðlíka hætti á öðrum ársfjórðungi en breytingin sú að meiri afgangur var þá af vöru- og þjónustuviðskiptum og sennilega minni halli á þáttajöfnuði m.a. vegna hagfelldari þróunar á erlendum mörkuðum. Reikna má með því að halli hafi verið á viðskiptum við útlönd á fjórðunginum en að hann hafi verið mun minni en á fyrsta fjórðungi. Reiknum við með því að hallinn verði um 20-30 milljarða kr. en þeirri spá verður að taka með miklum fyrirvara vegna afar mikillar óvissu um þróun þáttajafnaðarins. Seðlabankinn spáir því að afgangur verði á næsta ári á viðskiptum við útlönd og að sá afgangur verði tæplega 2% af landsframleiðslu. Stofnunin spáir síðan tæplega 4% afgangi á árinu 2011. Vaxandi afgangur af erlendum viðskiptum er kærkomin breyting á þeirri erlendu skuldasöfnun sem hér hefur verið á síðastliðnum árum. Einungis tvisvar á síðustu 15 árum hefur verið afgangur á viðskiptum við útlönd og aldrei á þessu tímabili meiri en 1,5% af landsframleiðslu, en það var í niðursveiflunni í upphafi þessa áratugar.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Sjá meira