Pardew bar enga virðingu fyrir Eggerti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2009 10:37 Eggert Magnússon og Alan Pardew skömmu eftir yfirtöku Íslendinganna á West Ham. Nordic Photos / AFP
Alan Pardew, fyrrum knattspyrnustjóri West Ham, segir að það besta sem gat komið fyrir West Ham var að Eggert Magnússon skyldi hætta sem stjórnarformaður félagsins. Pardew var í viðtali hjá Sky-sjónvarpsstöðinni en hann var rekinn sem knattspyrnustjóri West Ham nokkrum mánuðum eftir að Björgólfur Guðmundsson keypti félagið í samstarfi við Eggert sem tók við stöðu stjórnarformanns. Pardew sagði að samband hans við Eggert hafi verið lítið sem ekkert og að hann hafi haft óraunhæfar væntingar og hugmyndir um leikmannakaup. „Vandamálið hjá West Ham var að þegar Eggert kom inn í félagið. Ég bar enga virðingu fyrir honum og átti ekkert samband við hann," sagði Pardew. „Hann sýndi mér litla virðingu. Hann vildi kaupa leikmenn í átta mismunandi leikstöður en þegar ég ræddi við hann í fyrsta skipti sagði ég honum að ég þyrfti ekki á svo mörgum mönnum að halda." „Hann vildi kaupa allan heiminn. Mér fannst hann vera svolítið barnalegur og það besta sem gat komið fyrir West Ham var að hann fór. Mér finnst hreinlega að hann hafi ekki borið skilning á því hvernig þessir hlutir virkuðu." Pardew sagði enn fremur að yfirtaka Íslendinganna á West Ham hafi meðal annars orðið til þess að liðið átti í mikilli fallbaráttu það tímabilið. „Við vorum á okkar öðru ári í úrvalsdeildinni sem er alltaf erfitt. Yfirtakan olli miklum usla enda margir sem urðu þá óöruggir um eigið starfsöryggi." Pardew sagði enn fremur að koma þeirra Carlos Tevez og Javier Mascherano hafi líka valdið sér vanda. Pardew fannst að liðið vantaði leikmenn í aðrar stöður á þeim tímapunkti. „Ég ætlaði samt ekki að hafna tækifæri að þjálfa tvo leikmenn sem ég hafði horft á í heimsmeistarakeppninni fyrr um sumarið."
Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Fleiri fréttir Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Sjá meira