FME veitir upplýsingar úr rannsóknum sínum eftir lögum 12. janúar 2009 09:51
Fram kemur í yfirlýsingu á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins (FME) að stofnunin muni veita upplýsingar um niðurstöður rannsókna á vegum FME á þann hátt sem lög leyfa og eftir því sem verkinu vindur fram. Yfirlýsingin er að gefnu tilefni vegna umræðu um rannsóknir á starfsemi bankanna haustið 2008 og hljóðar svo: „Fjármálaeftirlitið hefur síðan um miðjan október sl. rannsakað hvort brotið hafi verið gegn þeim lögum sem Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með í starfsemi bankanna þriggja sem komust í greiðsluþrot í byrjun þess mánaðar. Má nefna að til skoðunar eru viðskipti með verðbréf og markaðssetning- og fjárfestingar peningamarkaðssjóða. Fjármálaeftirlitinu hafa einnig borist ýmsar ábendingar og eru þær skoðaðar sérstaklega. Utanaðkomandi sérfræðingar hafa að beiðni Fjármálaeftirlitsins skoðað ákveðna þætti er snúa m.a. að innri reglum bankanna og lögum um fjármálafyrirtæki. Þessi skoðun snýr t.d. að þáttum eins og óeðlilegum fjármagnshreyfingum innan samstæðu eða milli landa, skilmálabreytingum lánasamninga, breytingum á tryggingum og veðum, meðferð afleiðusamninga, viðskiptum með verðbréf og hlutdeildarskírteini verðbréfasjóða og meðferð rekstrarfjármuna. Upplýsingum vegna þessarar skoðunar hefur verið skilað til Fjármálaeftirlitsins. Um er að ræða frumgögn sem telja mörg hundruð blaðsíður. Úrvinnsla þessara upplýsinga er hafin með það fyrir augum að sannreyna hvort lög hafi verið brotin. Mikilvægt er að vandað sé til slíkrar rannsóknarvinnu og hún unnin af hlutlægni og þess jafnan gætt að spilla ekki rannsóknarhagsmunum. Í þessu skyni skal áréttuð sú grunnregla réttarríkisins að enginn er sekur þar til sekt er sönnuð. Fjármálaeftirlitið mun skipuleggja vinnu sína á þann hátt að rannsóknarvinnunni verði hraðað og bætt við tímabundnum starfsmönnum eða utanaðkomandi sérfræðingum ef þörf er á. Í þeim tilvikum sem niðurstöður benda til refsiverðs verknaðar verður beitt stjórnvaldssektum eða málum vísað til lögreglu. Veittar verða upplýsingar um niðurstöður rannsókna á þann hátt sem lög leyfa og eftir því sem verkinu vindur fram. Rétt er að taka fram að Fjármálaeftirlitið vinnur innan ákveðins lagaramma sem takmarkar möguleika þess á að tjá sig mál sem það hefur til skoðunar. Einnig er mögulegt að opinber umfjöllun um einstök mál á rannsóknarstigi geti spillt rannsóknum eða ónýtt mál fyrir dómi. Fjármálaeftirlitið, líkt og aðrar eftirlitsstofnanir, má ekki láta af hendi gögn sem tengjast rannsóknum sem það fæst við, nema heimild sé til staðar í lögum."
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira