Viðskipti innlent

Landic Property frestar vaxtagreiðslum og semur um ráðgjöf

Landic Property er nú að semja við eigendur skuldabréfaflokksins STOD 09 0306 um að fresta greiðslu vaxta fram til 6. mars en greiðslurnar átti að inna af hendi í desember. Jafnframt hefur Landic samið við tvær erlendar fjármálastofnanir um ráðgjöf við stefnumótun.

Í tilkynningu um málið segir að í kjölfarið á miklum breytingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum er nú unnið að því að móta nýja stefnu fyrir Landic Property. Samið hefur verið við UBS fjárfestingabankann og Catella Corporate Finance um ráðgjöf við stefnumótunina.

Vinnan felur meðal annars í sér úttekt á rekstri og efnahag félagsins með það að markmiði að styrkja fjárhagsstöðu þess og er unnin í nánu samstarfi við helstu kröfuhafa félagsins. Niðurstöðu er að vænta innan fárra vikna.

Einn liður í viðræðum um fjárhagslega endurskipulagningu eru samningar Landic Property við eigendur skuldabréfaflokksins STOD 09 0306 sem var með vaxtagjalddaga í desember. Farið hefur verið fram á að greiðsla vaxta frestist til 6. mars 2009 og greiðist samhliða höfuðstól á þeim degi. Unnið er að því að fá undirritað samþykki skuldabréfaeigenda við ofangreindum skilmálabreytingum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×