Viðskipti innlent

Skuldabréf Landic sett á Athugunarlista kauphallarinnar

Skuldabréf í fjórum flokkum útgefin af Landic Property hf., hafa verið færð á Athugunarlista kauphallarinnar með vísan til tilkynningar frá félaginu, dags. 9. janúar 2009, um greiðsluerfiðleika félagsins, að því er segir í tilkynningu frá kauphöllinni.

Greint er frá erfiðleikum Landic hér á síðunni en félagið er að semja við eigendur eins af þem skuldabréfaflokkum sem um ræðir að fresta vaxtagreiðslum af flokknum fram í mars. Greiðslurnar átti Landic að inna af hendi í síðasta mánuði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×