Ráð að byggja upp stóriðju á næstunni 8. ágúst 2009 04:00 helguvík Mælt er fyrir um í stöðugleikasáttmálanum að greiða eigi fyrir framkvæmdum eins og byggingu álvers í Helguvík. Um 1.600 manns eru atvinnulausir á Suðurnesjum. fréttablaðið/gva
Flest bendir til að þjóðhagslega hagkvæmt sé að ráðast í stóriðjuframkvæmdir á næstu árum og frekari uppbygging álframleiðslu leiðir til meiri stöðugleika en ella. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans sem unnin var fyrir iðnaðarráðuneytið og birt í gær. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að miðað við atvinnuleysi og þverrandi tekjur þjóðarinnar sé mjög brýnt að við nýtum okkar auðlindir. Sextán þúsund manns séu án atvinnu og þungt hljóð í mönnum fyrir haustið. Í stöðugleikasáttmálanum er gert ráð fyrir því að ríkisstjórnin greiði götu þegar ákveðinna framkvæmda, eins og álvers í Helguvík. Gylfi segir mikilvægt að ráðast í þær framkvæmdir þar sem mikið atvinnuleysi sé á Suðurnesjum. Í skýrslunni kemur fram að stóriðjuframkvæmdir styrki gengi krónunnar og minnki atvinnuleysi. Tímasetningar framkvæmdanna skipti þó máli og ábatinn sé mestur í efnahagslægð. Ekki er gert ráð fyrir kostnaði vegna umhverfiseyðileggingar í skýrslunni en í skýrslu fjármálaráðuneytisins, sem birt var nýlega, er talið að miðað við líklegan náttúrukostnað virkjana sé arðsemin umtalsvert minni en gefið sé til kynna. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir mikilvægt að umræða fari fram um arðsemi stóriðju og hún verði til hliðsjónar þegar framtíðarstefnan sé mótuð. Stefnt sé að umhverfisvænni iðnþróun með áherslu á litla og meðalstóra iðnaðarkosti. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er þeirrar skoðunar að nýta eigi orku landsins. Ekki þurfi þó að einangra sig við álver því fjölmargt annað komi til greina. „Mestu máli skiptir þó að þegar koma hingað áhugasamir fjárfestar verða þeir að mæta því viðmóti að stjórnvöld séu tilbúin að nýta orku landsins en ríkisstjórnin er ekki sammála í orkumálum,“ segir Bjarni.- vsp steingrímur j. sigfússon bjarni benediktsson gylfi arnbjörnsson
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Samskiptum á einkamál.is lauk með 108 milljóna tapi Sóknarnefnd ræður úrslitum um örlög regnbogafánans Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Sjá meira