Greining: Ársverðbólgan verður 8% næstu sex mánuði 18. september 2009 10:19
Greining Nýja Kaupþings gerir ráð fyrir 4% hækkun verðlags næstu 6 mánuði, þ.e. mánuðina ágúst 2009 til febrúar 2010. Verðbólgan verður því ríflega 8% á ársgrundvelli á þessu tímabili gangi spáin eftir. Þetta kemur fram í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir ennfremur að spá þeirra um verðbólgustig í september er óbreytt frá því hún var fyrst sett fram, það er 0,8% hækkun verðlags. Greiningin spáir 0,5% hækkun verðlags milli mánaða í október og 0,2% hækkun í nóvember. Eftirfarandi þættir ráða mestu um verðlagsþróun í október og nóvember: Gengi krónunnar er 25% veikara en þegar það náði sínu sterkasta gildi á árinu, þ.e. í mars síðastliðnum. Áhrif þessarar veikingar eru ekki öll komin fram en gengisstöðugleiki síðustu mánaða gerir það að verkum að áhrifin fara þverrandi. Því gerir verðbólguspá næstu þriggja mánaða ráð fyrir tiltölulega hóflegum áhrifum gengis á innflutningsverðlag. Í verðbólguspánni er gengið út frá því að gengi krónunnar haldist óbreytt í EUR/ISK 180 á spátímabilinu. Árstíðabundnir þættir valda því að verðlag hækkar að jafnaði heldur meira í október heldur en nóvember, sem skýrir að miklu leyti muninn á spánni fyrir mánuðina tvo. Húsnæðisverð lækkar vísitölu neysluverðs um 0,1% hvorn mánuðinn um sig samkvæmt spánni. Húsnæðisverðið er þó ávallt stór óvissuþáttur. Desember til febrúar: Vegna forsendunnar um stöðugt gengi verður innflutningsverðbólga hófleg á þessu tímabili. Helsti drifkraftur verðbólgunnar á þessu tímabili verður að mati greiningarinnar skatta- og gjaldskrárhækkanir hins opinbera, sem hún áætlar að skili um 2% hækkun verðlags um þetta leyti.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Sjá meira