Viðskipti innlent

Fyrrum starfsmenn Viðskiptablaðsins fá ekki greidd laun

Fyrrum starfsmenn Viðskiptablaðsins fá ekki greidd laun

Um 15 fyrrverandi starfsmenn Framtíðarsýnar, sem gaf út Viðskiptablaðið, fengu ekki greidd laun um síðustu mánaðamót, en útlit er fyrir að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta áður en langt um líður.

Útgáfa Viðskiptablaðsins breyttist þegar nýtt félag kom að því og kemur blaðið nú út vikulega í stað þess að koma út fjórum sinnum í viku áður. Blaðamannafélag Íslands mun gera kröfu í bú Framtíðarsýnar fyrir hönd fyrrverandi starfsmanna, verði það tekið til gjaldþrotaskipta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×