Viðskipti innlent

Íslandsbanki hvetur Baug til að leggja fram gögn

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.

Íslandsbanki hvetur Baug Group hf. til að veita almenningi og fjölmiðlum aðgang að þeim gögnum sem lögð voru fram fyrir Héraðsdómi í gærmorgun sé að það vilji forsvarsmanna félagsins að taka af allan vafa um fjárhagsstöðu og málefni þess.

Í tilefni af fréttatilkynningu Baugs til fjölmiðla fyrr í dag vill Íslandsbanki taka fram að það er rangt sem haldið er fram í yfirlýsingu Gunnars Sigurðssonar og Stefáns H. Hilmarssonar að Glitnir og Íslandsbanki hafi í málflutningi fyrir Héraðsdómi að einhverju leyti fjallað um þann sjóð sem stofna átti samkvæmt Project Sunrise verkefninu.

Í tilkynningu Íslandsbanka segir að fram hafi komið opinberlega að alþjóðlega endurskoðunarfyrirtækið Pricewaterhouse Coopers fór yfir tillögur Baugs Group vegna Project Sunrise og mat þær í senn óraunhæfar og óframkvæmanlegar og ekki til hagsbóta fyrir kröfuhafa. Í framhaldi hafi skilanefnd Landsbankans ákveðið að óska eftir greiðslustöðvun BG Holding í Bretlandi.

,,Það er rangt sem haldið er fram í yfirlýsingu Gunnars Sigurðssonar og Stefáns H. Hilmarssonar að bankarnir hafi í málflutningi fyrir Héraðsdómi að einhverju leyti fjallað um þann sjóð sem stofna átti samkvæmt Project Sunrise verkefninu. Sá sjóður kom aldrei til umræðu í Héraðsdómi. Hið rétta er að lögmenn bankanna bentu á misræmi í upplýsingnum um verðmæti dótturfélaga Baugs Group sem félagið hefur veitt kröfuhöfum," segir í tilkynningu Íslandsbanka.

Íslandsbanki fullyrðir að á fundi með almennum kröfuhöfum, sem haldinn var 27. febrúar sl., hafi Baugur Group kynnt efnahagsreikning þar sem eignasafn félagsins var metið mun hærra en efni stóðu til. ,,Í því sambandi er bent á að verðmætustu félögin í eignasafni Baugs Group hafa ýmist verið sett í skiptameðferð, tekin til gjaldþrotaskipta eða yfirtekin af einstökum kröfuhöfum." Fjárhagsupplýsingar sem kynntar voru kröfuhöfum tóku ekki mið af þessari stöðu.

,,Sé það vilji forsvarsmanna Baugs Group að taka af allan vafa um fjárhagsstöðu og málefni félagsins er þeim í lófa lagið að veita almenningi og fjölmiðlum aðgang að þeim gögnum sem lögð voru fram fyrir Héraðsdómi í gærmorgun. Íslandsbanki mun fyrir sitt leyti ekki standa í vegi fyrir birtingu þeirra gagna né greinargerðum lögmanna."


Tengdar fréttir

Telja að kröfuhafar hafi verið blekktir

Lögmenn Glitnis og Íslandsbanka halda því fram að Baugur Group hafi meðvitað reynt að blekkja kröfuhafa í tengslum við greiðslustöðvun. Algerlega staðlausir stafir, segir lögmaður Baugs. Misskilningur, segir fjármálastjóri félagsins.

Voru að bera saman epli og appelsínur

Forsvarsmenn Baugs segja það rangt hjá fulltrúum Glitnis og Íslandsbanka að halda því fram að stjórnendur Baugs hafi meðvitað blekkt kröfuhafa Baugs Group og lagt fram villandi upplýsingar.

Skilanefnd Glitnis stendur við málatilbúnað sinn fyrir dómi

Í tilefni af fréttatilkynningu Baugs Group hf. til fjölmiðla fyrr í dag vill skilanefnd Glitnis banka hf. taka fram að hún stendur í einu og öllu við málatilbúnað sinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og hafnar alfarið athugasemdum sem fram komu í fréttatilkynningu Baugs Group hf. í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×