Tvær skrifstofur Ferðamálastofu lagðar niður erlendis 20. maí 2009 12:32
Skrifstofur Ferðamálastofu í Kaupmannahöfn og Frankfurt verða lagðar niður, og munu verkefni þeirra flytjast að stórum hluta til sendiráða Íslands í viðkomandi ríkjum sem þannig taka að sér hlutverk markaðsskrifstofa ferðamála í náinni samvinnu við Ferðamálastofu og Útflutningsráð. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytisins segir að Utanríkisþjónustan, Útflutningsráð Íslands og Ferðamálastofa hafa hafið formlegt samstarf um kynningu á Íslandi sem ferðamannastað í samræmi við áætlanir um samhæfingu á kynningu Íslands erlendis. Stefnt er að því að sendiráð Íslands verði héðan í frá formlegur upplýsingaveitandi ferðamála erlendis og styðji af alefli við markaðsstarf Ferðamálastofu á helstu mörkuðum ferðaþjónustunnar. Sendiráð Íslands hafa hafist handa við að kynna þetta aukna samstarf fyrir söluaðilum Íslandsferða á Norðurlöndum, blaðamönnum og starfsfólki sem mun starfa við ferðamálin. Var m.a. kynning í Kaupmannahöfn í síðustu viku þar sem kynntir voru til sögunnar þeir starfsmenn sendiráðanna á Norðurlöndum og í Berlín sem sérstaklega hafa verið tilnefndir sem umsjónarmenn ferðamála í viðkomandi ríkjum. Þessir starfsmenn eru: Rósa Viðarsdóttir, Kaupmannahöfn; Elín Óskarsdóttir, Stokkhólmi; Arna Lísbet Þorgeirsdóttir, Helsinki; Lára Jónasdóttir, Osló (tímabundið); og Ruth Bobrich, Berlín en hún verður Davíð Jóhannssyni, forstöðumanni markaðsskrifstofu ferðamála í Frankfurt innan handar er hann flyst til Berlínar og heldur starfinu úti úr sendiráðinu.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira