Viðskipti innlent

Væntingar um minni verðbólgu setja svip á skuldabréf

Svo virðist sem verðbólguvæntingar hafi breyst verulega á skuldabréfamarkaði í kjölfar birtingar Seðlabankans á Peningamálum á síðastliðinn fimmtudag.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að í ritinu er að finna nýja verðbólguspá bankans sem er mun bjartsýnni hvað verðbólguhorfur varðar en fyrri spá sem gefin var út í nóvember. Raunar er hin nýja spá býsna lík verðbólguspá greinignarinnar sem birt var um miðjan janúar.

Gera báðar spárnar ráð fyrir að verðbólga sé nú í hámarki og að hún verði komin niður undir 2,5% markmið Seðlabanka að ári liðnu. Í kjölfarið gera spárnar ráð fyrir lítilli verðbólgu út áratuginn.

Krafan á stysta flokki verðtryggðra íbúðabréfa, HFF14, hækkaði snarpt seinni hluta síðustu viku, en sá skuldabréfaflokkur er viðkvæmur fyrir breytingum á verðbólguvæntingum. Krafa HFF14 er nú 4,56% en var 3,9% fyrir viku síðan.

Mun minni breytingar hafa orðið á kröfu annarra íbúðabréfa, sér í lagi þeirra lengstu. Á hinn bóginn hefur ávöxtunarkrafa flestra óverðtryggðra ríkisbréfa lækkað talsvert frá vaxtaákvörðun Seðlabanka á fimmtudag, því enda þótt vöxtum væri haldið óbreyttum var gefið sterklega í skyn að vaxtalækkun væri á næsta leyti og að vextir myndu lækka verulega á yfirstandandi ári.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×