Ólíklegt að Björgólfur Thor hagnist mikið á sölu Actavis 8. janúar 2009 14:20
Reuters-fréttastofan segir í dag að skriður sé kominn á hugsanlega sölu Actavis en fregnir um söluna hafa verið á sveimi frá því í október á síðasta ári. Þrátt fyrir verðmiða upp á 6 milljarða dollara, eða vel yfir 700 milljarða kr. er ólíklegt að Björgólfur Thor Björgólfsson hagnist mikið á sölunni. Björgólfur Thor á 80% af Actavis í gegnum félag sitt Novator en hann keypti Actavis fyrir 18 mánuðum síðan. Kaupin gerðu það að verkum að Actavis stóð uppi með skuld við Deutche Bank upp á 5,4 milljarða dollara eða svipaða upphæð og verðmiðinn er á félaginu samkvæmt Reuters. Einn af heimildarmönnum Reuters segir að stóra spurningin sé hve Actavis sé mikils virði að skuldunum frádregnum. Fram kemur að nokkrir áhugasamir kaupendur séu til staðar. Nefnir Reuters sem dæmi Pfizer, Sanofi-Aventis, Novartis og GlaxoSmithKline. Þar að auki munu nokkrir fjárfestingarsjóðir í Asíu hafa áhuga á kaupunum. Merrill Lynch var ráðið í fyrra til þess að annast ráðgjöf við söluna á Actavis. Setja átti félagið í sölumeðferð fyrir áramótin en þá setti Merckle-fjölskyldan þýska strik í reikninginn með því að setja sitt samheitalyfjafélag Ratiopharm GmbH á markaðinn. Greint var frá því máli á visir.is í nóvember.
Mest lesið Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira