Eimskip segir misskilning gæta í fréttum af forstjóralaunum 30. janúar 2009 14:29
Stjórn Eimskips segir að misskilnings hefur gætt í umfjöllun um ársreikning félagsins fyrir reikningsárið 2008 í fréttum um afkomu félagsins. Laun forstjóra félagsins skulu skoðast í samræmi við uppgjörsár félagsins sem er frá nóvember til október ár hvert. Í tilkynningu um málið segir að... "Gylfi Sigfússon forstjóri hf. Eimskipafélagsins tók við starfi forstjóra í maí á síðasta ári, en þar áður hafði hann starfað hjá félaginu í Norður-Ameríku í 12 ár og undir það síðasta starfaði hann sem framkvæmdastjóri Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada. Nýr launasamningur var gerður við Gylfa þegar hann tók við nýrri stöðu innan félagsins sem forstjóri þess. Við samningsgerð voru heildarlaun Gylfa 2,7 milljónir á mánuði. Þar sem fjölskylda Gylfa býr í Bandaríkjunum og illmögulegt fyrir hana að flytja til Íslands vegna skólagöngu barna var launagreiðslum skipt á milli Íslands og Bandaríkjanna miðað við gengi þess tíma. Engir samningar eru við Gylfa um bónus- eða kauprétti. Gylfi tók á sig 10% launalækkun eins og aðrir starfsmenn félagsins þann 1. desember þegar ljóst var að ráðast þyrfti í aðgerðir til að lækka kostnað. Uppgefin laun eru heildarlaun Gylfa, þar með talin laun frá því þegar hann starfaði fyrir Eimskip í Bandaríkjum. Stefán Ágúst Magnússon starfaði sem fjármálastjóri félagsins þar til hann tók tímabundið við stöðu forstjóra í febrúar 2008 og gegndi þeirri stöðu þar til í maí, en þá tók hann aftur við stöðu fjármálstjóra þar til hann lét af störfum í október 2008. Launagreiðslur til Stefáns í íslenskum krónum fyrir reikningsárið 2008, ekki eingöngu sem forstjóra, námu 67 milljónum og þar af námu bónusgreiðslur 18 milljónum. Baldur Guðnason starfaði sem forstjóri félagsins til febrúar 2008 þegar hann lét af störfum. Við starfslok Baldurs var gerður við hann starfslokasamningur sem byggður var á ráðningarsamningi hans frá 2007, sem gerður var við Baldur af þáverandi stjórnarformanni. Starfslokasamningurinn gerir ráð fyrir greiðslum að fjárhæð 50.000 Evra á mánuði í tvö ár. Í maí 2008 taldi stjórn Eimskipafélagsins að full ástæða væri til að skoða viðskilnað Baldurs við félagið, en þá hafði meðal annars komið fram alvarleiki rekstrarvandans og voru þá allar greiðslur til Baldurs stöðvaðar. Í kjölfarið stefndi Baldur félaginu og er það mál nú fyrir dómstólum. Telur félagið meðal annars að forsendur sé brostnar fyrir öllum bónus- og starfslokagreiðslum. Launagreiðslur Baldurs námu 58 milljónum á reikningsári félagsins 2008 í sex mánuði og þar af nam bónusgreiðsla 30 milljónum króna. Skal haft í huga að ársreikningur er í evrum og meðalgengi ársins er 114 íslenskar krónur."
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira