Sparnaður kvartar undan Nýja Landsbanka og KB-ráðgjöf 1. apríl 2009 14:50
Forsvarsmaður Sparnaðar ehf segir að sér hafi borist í hendur skjöl og vitneskja um að Nýi Landsbankinn beiti gróflegum rangfærslum og fölsun á gögnum í þeim tilgangi að ná til sín langtímasparnaði viðskiptavina Bayern Líf, sem er umboðsaðili þýsku tryggingarsamsteypunnar Versicherungs Kammer Bayern á Norðurlöndum. Af þessum sökum hefur Sparnaður sent kvörtun til Neytendastofu vegna ólögmætra viðskiptahátta Nýja Landsbankans. „Þetta er þeim mun alvarlegri blekkingar hjá Nýja Landsbankanum þegar haft er í huga að þeir eru að hvetja sparendur til þess að segja upp viðbótarlífeyrissparnaði hjá Bayern Líf, sem ábyrgist innistæður og lágmarks ávöxtun sparnaðarins með útgáfu tryggingaskírteinis. Um leið er Landsbankinn að benda fólki á verðtryggða reikninga sem valkost á tímum þegar verðhjöðnun er í gangi og verðtryggðar innistæður rýrna," segir Ingólfur Ingólfsson hjá Sparnaði ehf í tilkynningu sem hann sendi vegna málsins. Ingólfur hefur einnig sent kvörtun vegna KB-ráðgjafar, sem er söluaðili og dótturfélag Nýja Kaupþings Banka. Ingólfur segir að KB-ráðgjöf hafi einnig orðið uppvís að rangfærslum og blekkingum í tilraun sinni til þess að ná í lífeyrissparnað hjá viðskiptavinum Bayern Líf. „Það er vissulega lífsspursmál fyrir íslensku bankana að fá til sín sparnað almennings þar sem búið er að loka fyrir erlendar lántökur til þeirra. En það er ólíðandi, bæði fyrir fólkið í landinu og samkeppnisaðila bankanna, að þeir beiti blekkingum og rangfærslum til þess að ná til sín sparnaði fólks. Sá tími ætti að vera liðinn í bankaviðskiptum í dag. Það væri nær að íslenskir vörsluaðilar lífeyrissparnaðar, hvort sem það eru bankar eða lífeyrissjóðir, tækju upp fjárfestingarstefnu þýsku sparisjóðanna við varðveislu langtímasparnaðar, ekki síst í ljósi gríðarlegs taps á fjárfestingum sínum og jafnvel varanlegra skerðinga á lífeyrissréttindum sjóðfélaga sinna," segir Ingólfur. Ingólfur segir að mál NBI og KB-Ráðgjafar hafi verið send til Neytendastofu til meðferðar og þess vænst að Neytendastofa leggi stjórnvaldssektir á fyrirtækin í samræmi við alvarleika brotanna. Þá hafi ráðherra bankamála verið upplýstur um þessa ólögmætu og siðlausu viðskiptahætti Nýja Landsbankans og KB-Ráðgjafar.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira