Viðskipti innlent

Spyr hvort Peningastefnunefnd telji of skammt gengið

Viðskiptaráð Íslands veltir fyrir sér þeirri spurningu hvort Peningastefnunefnd Seðlabankans telji að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum gangi of skammt. Þetta kemur fram í umfjöllun um síðustu stýrivaxtaákvörðun á heimasíðu ráðsins.

Þar segir að í ljósi þess hversu augljós þörf er á frekari lækkun vaxta fyrir atvinnulíf og heimili almennt valdi ákvörðun peningastefnunefndar um óbreytta stýrivexti verulegum vonbrigðum.

Eins og kemur fram í yfirlýsingu nefndarinnar þá hefur töluvert miðað áleiðis á nokkrum mikilvægum vígstöðum, en þar bera ráðstafanir í ríkisfjármálum til skemmri tíma og langtímaáætlun um aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum hæst. Við síðustu vaxtaákvörðun í júní taldi nefndin einmitt þessar aðgerðir vera grundvöll þess að endurheimta traust markaðarins svo svigrúm yrði skapað til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds.

Þrátt fyrir mikilvægi þessara aðgerða þá virðast þær þannig hafa haft takmörkuð áhrif á vaxtaákvörðun peningastefnunefndar í vikunni. „Þetta vekur eðlilega upp spurningar hvort nefndin telji aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi gengið of skammt," segir á heimasíðunni.

Ljóst er að raunvextir eru enn óþægilega háir og verða að lækka verulega og sem allra hraðast til þess að auka flæði súrefnis inn í rekstrarumhverfi fyrirtækja, sem er afar bágborið þessa stundina. Til skemmri tíma er þetta eitt helsta hagsmunamál íslenskra fyrirtækja og heimila. Vonir Viðskiptaráðs standa því til þess að í næsta skrefi, í ágúst, verði vextir lækkaðir undir 10%. Það er hins vegar að mestu undir aðgerðum ríkisstjórnar komið hvort það verði reyndin eður ei.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×