Viðskipti innlent

Launavísitala hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði

Launavísitala í maí 2009 er 356,0 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,1%.

Þetta kemur fram í nýrri frétt á vefsíðu Hagstofunnar. Vísitala kaupmáttar launa í maí 2009 er 107,5 stig og lækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 6,8%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×