Bíða enn heimildar bankans 6. júní 2009 03:00 Hús landsvirkjunar Seðlabankinn hefur ekki veitt Landsvirkjun heimild til að gefa út skuldabréf í krónum og selja erlendum fjárfestum. Fréttablaðið/GVA
Seðlabankinn hefur enn ekki veitt Landsvirkjun heimild til útgáfu á skuldabréfi í krónum og selja erlendum fjárfestum. Talið er að þeir hafi meiri áhuga á ríkistryggðum skuldabréfum. „Við áttum fund með fulltrúum lífeyrissjóðanna og kynntum hugmyndir okkar um útgáfu skuldabréfa í Bandaríkjadölum. Þetta er á hugmyndastigi og ekki komið lengra,“ segir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar. „Ég myndi kjósa að þetta yrði að veruleika í júlí.“ Á fundinum, sem haldinn var í gærmorgun, var viðruð hugmynd um útgáfu skuldabréfs upp á 50 milljónir dala, jafnvirði rétt rúmra sex milljarða króna, á gengi gærdagsins. Ef af verður munu lífeyrissjóðirnir kaupa bréfin með erlendum eignum. Þetta er annar tveggja kosta sem Landsvirkjun hefur í skoðun varðandi skuldabréfaútgáfu til að styrkja eiginfjárstöðu fyrirtækisins og koma framkvæmdum af stað. Hin er í samræmi við heimild Seðlabankans sem felur í sér að erlendir eigendur íslenskra krónubréfaeigna kaupi íslensk skuldabréf útgefin í krónum sem greidd eru til baka í erlendum gjaldeyri. Viðræður hafa staðið yfir á milli Landsvirkjunar og Seðlabankans auk fleiri fyrirtækja um leiðir sem þessa síðan fyrir áramót. Lendingin var að gera erlendum fjárfestum, sem festust inni við setningu gjaldeyrishaftanna, kleift að losa stöður sínar með kaupum á skuldabréfum í krónum sem greiðast til baka í uppgjörsmynt viðkomandi fyrirtækis. Lítil hreyfing er á málinu en stærstu útflutningsfyrirtæki landsins bíða þess að Landsvirkjun brjóti ísinn. Það hefur enn ekki gerst þar sem Seðlabankinn hefur enn ekki veitt Landsvirkjun heimild til útgáfunnar. Tölvuleikjafyrirtækið CCP nýtti sér heimildina á dögunum og blés til skuldabréfaútgáfu undir lok síðasta mánaðar. Hilmar V. Pétursson, forstjóri CCP, vildi ekkert tjá sig um málið í gær. „Við erum að fara yfir það,“ segir hann. Viðmælendur Fréttablaðsins telja ekki ósennilegt að erfitt sé að heilla erlenda krónubréfaeigendur sem sitja fastir með eign sína í Seðlabankanum. Hafi þeir meiri áhuga á ríkistryggðum skuldabréfum og bréfum sveitarfélaga en skuldabréfum fyrirtækja. Því verði að leita annarra fjármögnunarkosta, svo sem með því að leita til lífeyrissjóðanna. jonab@markadurinn.is
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira