Felldu ekki gengið 6. febrúar 2009 18:43
Kaupþing og Exista reyndu ekki að fella gengi krónunnar á síðasta ári, þrátt fyrir kaup á tvö þúsund milljónum evra á nokkrum mánuðum. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins, sem kannaði málið að beiðni Seðlabankans. Seðlabankinn fór þess á leit við Fjármálaeftirlitið í apríl á síðasta ári að það kannaði hvort Kaupþing og stærsti eigandi hans Exista hafi reynt að fella krónuna til að hagnast á lækkun gengisins. Bréfið er undirritað af Davíð Oddssyni og Eiríki Guðnasyni, bankastjórum Seðlabankans. Fréttastofa hafði heimildir fyrir þessari rannsókn og óskaði eftir gögnum um hana frá Seðlabankanum fyrir nokkrum vikum. Gögnin bárust í dag. Í vinnuskjali sem Seðlabankinn sendi Fjármálaeftirlitinu segir að veiking krónunnar hafi skaðað íslenskt efnahagslíf og að ef aðilar í bankastarfsemi séu vísvitandi að grafa undan gjaldmiðlinum sé allt þjóðfélagið undir í því veðmáli. Slík hegun geti í versta falli leitt til þjóðargjaldþrots. Skemmst er frá því að segja að Fjármálaeftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu í ágúst eftir rannsókn sína að engar vísbendingar séu um að lög hafi verið brotin. Þó kemur fram í bréfi eftirlitsins til Seðlabankans að Kaupþing hafi keypt um 2000 milljónir evra frá nóvember 2007 til mars 2008, á um fjórum mánuðum. Einnig að aðaleigandi Kaupþings, Exista, hafi bókfært 30 milljarða króna hagnað árið 2007. Engar skýringar hafi verið gefnar fyrir þeim hagnaði. Fjármálaeftirlitið telur þó að umsvif Kaupþings í evrukaupum miðað við Glitni og Landsbanka séu ekki óeðlileg með tilliti til stærðarmunar bankanna.
Mest lesið Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira